Álagning fasteignagjalda 2015

Álagningu fasteignagjalda  í Húnaþingi vestra árið 2015 er nú lokið.
Álagningarseðlar hafa verið sendir til fasteignaeigenda sem eru 67 ár og eldri og til fyrirtækja.
Vakin er athygli á að allir álagningarseðlar einstaklinga eru aðgengilegir á netsíðunni www.island.is undir „mínar síður“.  Gjalddagar eru sex,  þ.e. 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí og 1. ágúst.  Eindagi er 30 dögum síðar.
Þeir sem óska eftir að fá senda álagningarseðla á pappírsformi þurfa að hafa samband við skrifstofu Húnaþings vestra Hvammstangabraut 5, sími 455-2400 eða á netfang skrifstofa@hunathing.is
Einnig eru þeir sem vilja almennt ekki  fá senda greiðsluseðla frá sveitarfélaginu vinsamlegast beðnir um að láta vita í síma 455-2400 eða á netfang  skrifstofa@hunathing.is 

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Var efnið á síðunni hjálplegt?