Afhending styrkja úr Húnasjóði 2016

Þann 18. ágúst sl. fór fram afhending styrkja úr Húnasjóði á kaffihúsinu Hlaðan á Hvammstanga.  Formaður byggðarráðs, Elín Jóna Rósinberg afhenti styrkina.

Það er byggðarráð Húnaþings vestra sem úthlutar úr sjóðnum og var það gert á 912.fundi ráðsins þann 25. júlí sl.  Styrkþegar að þessu sinni eru:

Guðríður Hlín Helgudóttir,  nám til BA prófs í ferðamálafræði.
Kolbrún Arna Björnsdóttir, nám til BA prófs í japönsku máli og menningu
Kristrún Pétursdóttir,  nám til BS prófs í næringarfræði
Sigrún Soffía Sævarsdóttir,  nám til BS prófs í umhverfis- og byggingarverkfræði
Þorgrímur Guðni Björnsson, nám til BS prófs í íþróttafræði

Styrkfjárhæð á hvern styrkþega er kr. 100.000

Húnasjóður er sjóður sem hjónin Ásgeir Magnússon og Unnur Ásmundsdóttir frá Ægissíðu á Vatnsnesi stofnuðu til að minnast Alþýðuskóla Húnvetninga en Ásgeir stofnaði skólann árið 1913 og stýrði honum til ársins 1919. 

Þeim hjónum var mikið í mun að vestur Húnvetningar  hefðu tækifæri til að mennta sig og auk þess að stofna Húnasjóð gáfu þau árið 1960 Háskóla Íslands 10.000 kr. gjöf til eins herbergis í fyrirhuguðum nýjum stúdentagarði .  Herbergið skyldi nefnast Ægissíða og stúdent úr Vestur Húnavatnssýslu hafa forgangsrétt til að búa í herberginu. 

Við sameiningu sveitarfélaga 2000 var Húnasjóður endurvakinn og ný skipulagsskrá rituð.  Úthlutað er úr sjóðnum árlega  og miðast fjármagn við framlag frá sveitarsjóði ásamt hálfum vöxtum höfuðstóls.

IMG_0399.JPG

IMG_0403.JPG

Var efnið á síðunni hjálplegt?