Ærslabelgurinn opinn !

Ærslabelgurinn opinn !

Búið er að blása upp ærslabelginn eftir smávægilegar viðgerðir á honum. 

Hann verður uppblásinn frá kl. 10:00 til kl. 20:00 alla daga.

Allir eru á eigin ábyrgð á hoppubelgnum - börn og ungmenni eru á ábyrgð forráðamanna.

Munum umgengnisreglur og göngum vel um hann saman :)

  • Skóbúnað skal geyma fyrir utan belginn á meðan hoppað er. Ekki er leyfilegt að hoppa á belgnum í skóm.
  • Í rigningu og bleytu er ekki æskilegt að hoppa á belgnum, þar sem hann getur orðið mjög sleipur.
  • Halda skal svæðinu snyrtilegu. Muna að taka allt með sér þegar farið er; föt, sokka og rusl.
  • Sýna hvort öðru tillitssemi og virðingu á belgnum.

 

Góða skemmtun ! 

Var efnið á síðunni hjálplegt?