Aðalfundur Veiðifélags Víðidalstunguheiðar

Aðalfundur Veiðifélags Víðidalstunguheiðar

Aðalfundur Veiðifélags Víðidalstunguheiðar verður haldinn í Dæli fimmtudaginn 6. apríl 2017 og hefst klukkan 20:00.

 

Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf, en auk þess verður  kynnt lokaskýrsla um rannsóknir á vötnum á Víðidalstunguheiði.  Rannsóknir þessar hófust sumarið 2015, og á fundinum munu fiskifræðingar  Veiðimálstofnunar kynna niðurstöður rannsóknanna og svara fyrirspurnum.

 

Eftir fund Veiðifélagsins verður almennur fundur í Fjallskiladeild Víðdælinga, um kl. 21:00 þar sem farið verður yfir rekstur deildarinnar sl. ár og rætt um helstu verkefni framundan.

Var efnið á síðunni hjálplegt?