Að gefnu tilefni varðandi grenndarstöðvar

Að gefnu tilefni varðandi grenndarstöðvar

Eins og flestir vita rekur sveitarfélagið Húnaþing vestra nokkrar grenndarstöðvar. Almennt hefur umgengni þar verið góð en undanfarið hefur borið á því að rusl, sem ekki kemst fyrir í gámum og ekki á heima í þeim, er skilið eftir við gámana. Slíkt eykur kostnað við rekstur soprþjónustu sem sveitarfélaginu er skylt að rukka fyrir í gegnum sorpgjöld. Grenndarstöðvar eru fyrst og fremst hugsaðar sem móttaka á almennu heimilissorpi en ekki öðrum flokkum. Allt rusl á að flokka og það sem ekki er sótt á að skila á móttökustöð Hirðu.

Opnunartímar Hirðu, sem staðsett er á Höfðabraut 34, eru þriðjudagar og fimmtudagar frá 14-17 og laugardagar frá 11-15.

Var efnið á síðunni hjálplegt?