Viðauki 14 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2611089

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1300. fundur - 23.11.2026

Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna uppsetningar saunaklefa í sundlaugargarði Íþróttamiðstöðvar og vegna endurnýjunar tankbíls Brunavarna Húnaþings vestra.
Eignasjóður
Sauna kr. 17.622.000
Tankbíll kr. 20.000.000

Hitaveita
Hitaveita, veitukerfi kr. -37.622.000

Hækkun eignfærðrar fjárfestingar, samtals kr. 0

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.


Til stendur að setja upp saunaklefa í sundlaugargarði íþróttamiðstöðvar. Um er að ræða frístandandi klefa sem settur verður upp við suðurhlið garðsins. Kostnaður miðast við kaup á klefanum, flutning hans, uppsetningu, breytingar á girðingu umhverfis sundlaugargarð og tengivinnu. Á þriggja ára áætlun sem unnin var samhliða fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 var gert ráð fyrir 22 millj. kr. til verkefnisins á árinu 2028.

Núverandi tankbíll Brunavarna Húnaþings vestra er kominn til ára sinna og uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru til slíkra tækja. Fest verða kaup á Scania D320, árg. 2010 ekinn 98 þús km. Með því er viðbragðsgeta slökkviliðsins aukin til mikilla muna. Verð bílsins miðast við kaupverð, flutning, aðflutningsgjöld og nagladekk.
Var efnið á síðunni hjálplegt?