Viðauki 13 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2611088

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1300. fundur - 23.11.2026

Formaður kannaði lögmæti fundarins og spurði hvort athugasemdir væru gerðar við boðun hans og fylgigögn. Engar athugasemdir komu fram.
Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna aukins launakostnaðar við Leikskólann Ásgarð.
Fræðslu- og uppeldismál
Laun- og launatengd gjöld kr. 1.330.705
Sameiginlegur kostnaður
Ófyrirséð kr. -1.330.705

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

Viðaukinn er tilkominn vegna aukins kostnaðar við afleysingar og starfsmannahald á Leikskólanum Ásgarði til að tryggja lögboðna mönnun og órofinn rekstur skólans.

Viðaukanum er mætt með lækkun á liðnum Ófyrirséður kostnaður og hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu A-hluta.

Samhliða framlagningu viðaukans var lagt fram málaflokkayfirlit.
Var efnið á síðunni hjálplegt?