- Stjórnsýsla
- Stjórnkerfi
- Reglugerðir og samþykktir
- Atvinnu- og nýsköpunarsjóður
- Stjórnir og ráð
- Byggðarráð
- Félagsmálaráð
- Fjallskilastjórnir
- Fræðsluráð
- Kjörstjórn
- Landbúnaðarráð
- Skipulagsráð
- Ungmennaráð
- Umhverfis-, veitu- og framkvæmdaráð
- Öldungaráð Húnaþings vestra
- Aðrar nefndir og ráð
- Fundargerðir
- Erindisbréf
- Eldri fundargerðir
- Sveitastjórn - eldra
- Byggðarráð - eldra
- Félagsmálaráð - eldra
- Fræðsluráð - eldra
- Landbúnaðarráð - eldra
- Menningar-og-tómstundaráð - eldra
- Skipulags- og umhverfisráð - eldra
- Forvarnahópur - eldra
- Ungmennaráð - eldra
- Samstarfsnefndar um sameiningu - eldra
- Aðrar fundargerðir - eldra
- Afgreiðslufundir Byggingarfulltrúa - eldra
- Fjármál
- Svið og mannauður
- Útgefið efni
- Leigufélagið Bústaður hses.
- Þjónusta
- Velferð & fjölskylda
- Íþróttir & tómstundir
- Menntun og fræðsla
- Söfn og menning
- Skipulags- og byggingarmál
- Þjónustumiðstöð, veitur og höfn
- Samgöngur og öryggi
- Umhverfismál
- Mannlíf
- Laus störf
- Vatnsveita
- Ertu að flytja í Húnaþing vestra
- Eyðublöð
- Gjaldskrár
- Persónuverndarstefna
- Veituráð
- Covid-19 spurt & svarað
- Covid-19 Questions and answers
- ÁHUGAVERT
- Atvinnu- og nýsköpunarsjóður
- 26. september 2022
- 3. október 2022
- 11. október 2022
- 17. október 2022
- 24. október 2022
- 31. október 2022
- 7. nóvember 2022
- 14. nóvember 2022
- 21. nóvember 2022
- 28. nóvember 2022
- 5. desember 2022
- 19. desember 2022
- 23. desember 2022
- 30. desember 2022
- 16. janúar 2023
- 23. janúar 2023
- 30. janúar 2023
- 6. febrúar 2023
- Sigríður Ólafsdóttir
- Elín Lilja Gunnarsdóttir
- - Fótur
- 13. febrúar 2023
- Magnús Vignir Eðvaldsson
- Þorgrímur Guðni Björnsson
- Þorleifur Karl Eggertsson
- Magnús Magnússon
- 20. febrúar 2023
- 27. febrúar 2023
- 6. mars 2023
- 20. mars 2023
- 27. mars 2023
- 3. apríl 2023
- 11. apríl 2023
- 26. apríl 2023
- 1. maí 2023
- 8. maí 2023
- 15. maí 2023
- 22. maí 2023
- Ávarp í leikskrá Meistaraflokks Kormáks-Hvatar 2023
- Inngangur í Húna 2022
- 29. maí 2023
- 5. júní 2023
- 12. júní 2023
- 28. ágúst 2023
- 4. september 2023
- 11. september 2023
- 25. september 2023
- 2. október 2023
- 9. október 2023
- 16. október 2023
- 23. október 2023
- 6. nóvember 2023
- 13. nóvember 2023
- 20. nóvember 2023
- 27. nóvember 2023
- 22. desember 2023
- Ingimar Sigurðsson
- 15. janúar 2024
- 22. janúar 2024
- 29. janúar 2024
- Listi yfir gjafir
- 12. febrúar 2024
- 19. febrúar 2024
- 26. febrúar 2024
- 4. mars 2024
- 18. mars 2024
- 27. mars 2024
- 15. apríl 2024
- 22. apríl 2024
- 21. maí 2024
- 27. maí 2024
- Viktor Ingi Jónsson
- 3. júní 2024
- Styrkþegar Húnasjóðs frá 2001
- Styrkþegar atvinnu- og nýsköpunarsjóðs frá 2014
- 7. október 2024
- 14. október 2024
- 21. október 2024
- 30. desember 2024
- 13. janúar 2024
- 20. janúar 2025
- 27. janúar 2025
- 3. febrúar 2025
- 10. febrúar 2025
- 17. febrúar 2025
- 24. febrúar 2025
- 17. mars 2025
- 24. mars 2025
- 31. mars 2025
- 7. apríl 2025
- 14. apríl 2025
- 5. maí 2025
- 12. maí 2025
- 2. júní 2025
- 29. ágúst 2025
- 8. september 2025
- FLÝTILEIÐIR
- 15. september 2025
- Mál til samráðs
- 22. september 2025
- 29. september 2025
- 6. október 2025
- 14. október 2025
- 20. október 2025
- 27. október 2025
- 23. nóvember 2025
- 6. janúar 2026 áramótakveðja
- 26. janúar 2026
- 9. febrúar 2026
- 23. febrúar 2026
- 16. mars 2026
- Nína Axelsdóttir
- Sigurður Líndal Þórisson
- Eygló Hrund Guðmundsdóttir
- Kynningarmyndbönd
- 8. júlí 2026
- Forstöðumaður framkvæmda og veitna
- Umsjónarmaður veitna
- Verkefnastjóri menningar, viðburða og samfélagsstarfs
- Verekefnastjóri barna-, ungmenna- og frístundastarfs
Byggðarráð telur hins vegar að styrkja þurfi tengsl milli markmiða áætlunarinnar, þeirra aðgerða sem henni fylgja og fjármögnunar þeirra. Byggðaáætlun þarf að vera raunhæft stjórntæki sem skilar mælanlegum umbótum á búsetuskilyrðum, ekki einungis vettvangur stefnumótunar, greininga og tímabundinna þróunarverkefna. Sérstaklega þarf að horfa til aðstæðna landstórra og dreifbýlla sveitarfélaga þar sem fjarlægðir eru miklar, kostnaður við innviði og grunnþjónustu hlutfallslega hár og markaðsbrestir geta hamlað atvinnu- og húsnæðisuppbyggingu.
Byggðarráð vill beina athugasemdum sínum að fjórum þáttum.
1. Fjárframlög byggðaáætlunar haldi raunvirði sínu
Byggðarráð Húnaþings vestra lýsir áhyggjum af rýrnun raunvirðis fjárframlaga til aðgerða byggðaáætlunar. Samkvæmt samanburði á fjárhagsramma gildandi aðgerðaáætlunar fyrir árin 2022-2026 og fyrirliggjandi tillögu fyrir árin 2027-2031 er gert ráð fyrir lægri heildarframlögum að nafnvirði. Framlag til byggðaáætlunar lækkar úr 4.392 millj. kr. á árunum 2022-2026 í 3.985 millj. kr. á árunum 2027-2031, eða um rúm 9%. Þegar tekið er tillit til verðlagsþróunar verður munurinn enn meiri, eða nærri 30%. Við samanburð á einstökum aðgerðum kemur jafnframt fram að framlög til margra þeirra lækka að raunvirði, jafnvel þótt fjárhæðir haldist óbreyttar eða hækki lítillega að nafnvirði eins og eftirfarandi dæmi sýna miðað við verðlagsbreytingar frá meðalverðlagi ársins 2022 til október 2026:
Aðgerð Breyting á raunvirði
Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða 22,22%
Brothættar byggðir -15,7%
Verslun í minni byggðarlögum -14,9%
Almenningssamgöngur -28,2%
Hringrásarlausnir sveitarfélaga -54,2%
Sérstaka athygli vekur að gert er ráð fyrir óbreyttu 700 millj. kr. framlagi til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða á fimm ára tímabili. Til að viðhalda raunvirði framlagsins frá árinu 2022 þyrfti fjárhæðin að nema um 899 millj. kr. á verðlagi í október 2026. Sóknaráætlanir landshluta eru mikilvægt tæki til atvinnuþróunar, nýsköpunar og samfélagslegrar uppbyggingar. Rýrnun framlaga skerðir getu þeirra til að sinna þessu hlutverki.
Þá er ástæða til að vekja athygli á verulegri raunlækkun framlaga til hringrásarlausna sveitarfélaga. Úrgangsmál eru dæmi um málaflokk þar sem kostnaður dreifbýlla sveitarfélaga getur verið hlutfallslega mikill vegna fjarlægða, flutningskostnaðar og fámennis. Enn hafa ekki öll sveitarfélög landsins náð að leysa þær áskoranir sem fylgdu auknum kröfum til sveitarfélaga í málaflokknum og því brýnt að þau fái stuðning við að ljúka verkefninu.
Byggðarráð leggur til að:
-Fjárhagsrammi byggðaáætlunar verði endurskoðaður með hliðsjón af verðlagsþróun frá árinu 2022.
-Framlög til sóknaráætlana landshluta verði hækkuð þannig að þau fylgi að lágmarki verðlagsþróun.
-Við fjárhagslega framsetningu byggðaáætlunar verði sýndar bæði nafnvirðis- og raunvirðisbreytingar frá fyrri áætlun.
-Gert verði ráð fyrir reglulegri endurskoðun fjárframlaga á gildistíma áætlunarinnar.
2. Kostnaður við grunnþjónustu og þjónustusókn í dreifbýli verði metinn og jafnaður
Byggðarráð telur að eitt mikilvægasta verkefni byggðaáætlunar sé að jafna þann raunverulega kostnaðarmun sem fylgir búsetu í dreifbýli. Þó áhersla sé lögð á jafnt aðgengi að þjónustu í tillögunni telur byggðarráð að skýrari aðgerðir þurfi til að meta og jafna þann kostnað sem fjarlægðir og dreifð byggð hafa í för með sér, bæði fyrir íbúa og sveitarfélög. Í Húnaþingi vestra eru vegalengdir miklar og sveitarfélagið þarf að tryggja grunnþjónustu á víðfeðmu landsvæði. Þetta hefur áhrif á rekstur skóla, skólaakstur, félagsþjónustu, íþrótta- og tómstundastarf og ýmsa aðra þjónustu. Sem dæmi má nefna:
a) Skólaakstur og frístundastarf barna. Börn í dreifbýli þurfa oft að ferðast langar vegalengdir til skóla og til þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi. Kostnaður við akstur getur verið verulegur, hvort sem hann fellur á sveitarfélagið eða fjölskyldurnar sjálfar. Í Húnaþingi vestra er einn mesti skólaakstur á landinu og þeim kostnaði sem fellur á sveitarfélagið er ekki mætt nema að hálfu leyti af jöfnunarsjóði. Þá hafa vegalengdir og ástand vega áhrif á öryggi og möguleika barna til þátttöku.
b) Aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Íbúar dreifbýlis þurfa oft að ferðast umtalsverðar vegalengdir til að sækja sérfræðiþjónustu og aðra heilbrigðisþjónustu. Slíkar ferðir hafa í för með sér beinan ferðakostnað, vinnutap og annan óbeinan kostnað sem ekki kemur fram þegar aðgengi að þjónustu er eingöngu metið út frá því hvort hún sé formlega til staðar. Má þar nefna samfélagslegan kostnað, svo sem kostnað vinnuveitenda vegna fjarveru starfsmanna.
c) Samgöngur og atvinnusókn. Takmarkaðar almenningssamgöngur leiða til þess að íbúar dreifbýlis eru í ríkari mæli háðir einkabifreiðum. Það hefur áhrif á kostnað við atvinnusókn, menntun og aðra daglega þjónustu. Samkvæmt frumvarpi vegna fjárlaga 2027 á kílómetragjald á fólksbifreiðar að hækka úr 6,95 kr. í 8,05 kr. á hvern ekinn kílómetra, eða um tæp 16%, sem leggst þyngst á þá sem lengst þurfa að aka.
Í gildandi byggðaáætlun er aðgerð A.16 um kostnaðargreiningu vegna þjónustusóknar. Henni voru ætluð árin 2022-2023 og 5 millj. kr. af byggðaáætlun, en samkvæmt birtum upplýsingum um framkvæmd áætlunarinnar er hún enn skráð í vinnslu, nær þremur árum eftir að henni átti að ljúka. Samt setur tillagan það markmið að kostnaður við þjónustusókn verði jafnaður óháð búsetu, án þess að sjálfstæð aðgerð fylgi um að meta hann. Hvernig á að jafna kostnað sem aldrei hefur verið metinn? Byggðarráð telur mikilvægt að þeirri vinnu verði lokið og niðurstöðurnar nýttar við mótun raunverulegra jöfnunaraðgerða.
Byggðarráð leggur til að:
-Lokið verði við kostnaðargreiningu vegna þjónustusóknar og niðurstöður hennar birtar.
-Þróaðir verði mælikvarðar á raunverulegan kostnað íbúa vegna fjarlægðar frá grunnþjónustu.
-Gerð verði sérstök greining á kostnaðarmun við rekstur grunnþjónustu sveitarfélaga eftir byggðamynstri, vegalengdum og fjölda þjónustustaða. -Niðurstöðurnar verði nýttar við endurskoðun fjármögnunar og jöfnunarkerfa ríkis og sveitarfélaga.
-Sérstaklega verði horft til skólaaksturs, frístundaaksturs barna og aðgengis að heilbrigðisþjónustu.
3. Tryggð verði eftirfylgni verkefna fyrri byggðaáætlunar
Byggðarráð Húnaþings vestra telur mikilvægt að ný byggðaáætlun byggist á skýru mati á framkvæmd og árangri gildandi áætlunar. Við endurskoðun byggðaáætlunar er eðlilegt að aðgerðir sem hafa náð markmiðum sínum falli út og ný verkefni taki við. Mikilvægt er þó að tryggja að árangur lokinna verkefna verði varanlegur og að ólokin verkefni falli ekki niður án skýrrar ákvörðunar um framhald þeirra.
Samkvæmt upplýsingum á vef innviðaráðuneytisins hefur nokkrum þeirra aðgerða sem ekki er gert ráð fyrir að halda áfram sem sjálfstæðum verkefnum verið lokið. Þar má meðal annars nefna aðgerðir um heildstæða skólaþjónustu, jafnræði til náms, starfsþróun starfsfólks leik- og grunnskóla og skilgreiningu opinberrar grunnþjónustu. Byggðarráð telur jákvætt að þessum verkefnum hafi verið lokið og að ekki sé þörf á að viðhalda þeim sem sérstökum aðgerðum í nýrri byggðaáætlun. Hins vegar er mikilvægt að niðurstöður þeirra nýtist áfram við stefnumótun og ákvarðanatöku, meðal annars varðandi fjármögnun grunnþjónustu og jöfnun aðgengis að henni.
Jöfnun orkukostnaðar er annað dæmi um verkefni þar sem verulegur árangur hefur náðst á gildistíma núverandi áætlunar. Hafi markmiði aðgerðarinnar verið náð og varanlegt fyrirkomulag jöfnunar tryggt telur byggðarráð eðlilegt að hún falli út úr nýrri byggðaáætlun. Mikilvægt er þó að tryggja að sá árangur sem náðst hefur haldist til framtíðar.
Sérstaka athygli vekur hins vegar að nokkrar aðgerðir gildandi áætlunar eru enn skráðar í vinnslu en eiga sér ekki skýra sjálfstæða samsvörun í nýrri áætlun. Þar má nefna:
a) Kostnaðargreiningu vegna þjónustusóknar. Verkefnið hefur sérstaka þýðingu fyrir dreifbýl sveitarfélög þar sem íbúar þurfa oft að ferðast langar vegalengdir til að sækja grunnþjónustu. Niðurstöður slíkrar greiningar geta verið mikilvæg forsenda markvissra aðgerða til að jafna búsetuskilyrði. Byggðarráð telur brýnt að lokið verði við verkefnið og niðurstöðurnar nýttar við mótun jöfnunaraðgerða.
b) Þrífösun og jarðstrengjavæðingu. Á gildistíma núverandi byggðaáætlunar hefur verið unnið að umfangsmiklu átaki í þrífösun og jarðstrengjavæðingu dreifikerfis raforku. Markmið átaksins var að ljúka framkvæmdum á þjóðhagslega mikilvægum hluta dreifikerfisins að mestu fyrir árslok 2025. Byggðarráð telur eðlilegt að sérstök aðgerð um hröðun framkvæmda falli út hafi markmiðum hennar verið náð. Mikilvægt er þó að tryggja að áframhaldandi uppbygging og afhendingaröryggi raforku í dreifbýli verði hluti af reglubundinni áætlanagerð og framkvæmd dreifiveitna.
c) Greiningu atvinnusóknar. Upplýsingar um raunveruleg atvinnusóknarsvæði eru mikilvægar við skipulag samgangna, þjónustu og atvinnuuppbyggingar. Skýra þarf hvort verkefninu verði lokið og hvernig niðurstöður þess verði nýttar við stefnumótun.
Byggðarráð telur ekki nauðsynlegt að allar aðgerðir gildandi áætlunar haldi áfram undir sömu heitum eða innan sömu áætlunar. Hins vegar þarf að liggja fyrir skýrt yfirlit yfir stöðu þeirra og hvernig tryggja eigi eftirfylgni verkefna sem enn er ólokið.
Byggðarráð leggur til að:
-Nýrri byggðaáætlun fylgi heildstætt yfirlit yfir stöðu aðgerða gildandi áætlunar, þar sem fram komi hvaða verkefnum hafi verið lokið, hvaða verkefni séu enn í vinnslu og hvaða verkefni hafi verið færð í annan farveg.
-Sérstaklega verði gerð grein fyrir óloknum verkefnum sem falla út sem sjálfstæðar aðgerðir, ásamt rökstuðningi fyrir þeirri ákvörðun.
-Í tilfelli ólokinna verkefna sem haldið verður áfram verði tilgreindir ábyrgðaraðilar, áætluð verklok og fjármögnun.
-Tryggt verði að niðurstöður lokinna verkefna nýtist áfram við stefnumótun og framkvæmd aðgerða til að jafna búsetuskilyrði.
Byggðarráð leggur áherslu á að árangur byggðaáætlunar ráðist af því hvort aðgerðum sé lokið með tilætluðum árangri og hvort sú vinna sem eftir stendur fái nauðsynlega eftirfylgni.
4. Aðgerðum fylgi skýr fjármögnun, tímasetningar og mælanlegur árangur Byggðarráð Húnaþings vestra telur að árangur byggðaáætlunar ráðist ekki síst af því hvort markmiðum hennar fylgi raunhæfar, fjármagnaðar og tímasettar aðgerðir. Í tillögunni er að finna fjölmörg mikilvæg verkefni sem geta haft jákvæð áhrif á búsetuskilyrði og atvinnuþróun. Í sumum tilvikum snúa aðgerðirnar þó fyrst og fremst að greiningum, stefnumótun eða undirbúningi frekari ákvarðana. Byggðarráð telur mikilvægt að slíkum verkefnum fylgi skýr áætlun um hvað taki við þegar greiningu eða undirbúningi lýkur.
Má þar nefna eftirfarandi dæmi:
a) Byggðatengdar ívilnanir. Mikilvægt er að skoðun á mögulegum ívilnunum leiði til niðurstöðu um hvort og hvernig slíkum úrræðum verði komið á. Ívilnanir gætu meðal annars stuðlað að atvinnuuppbyggingu, auðveldað nýliðun og styrkt búsetu í byggðarlögum þar sem fólksfækkun eða takmörkuð atvinnufjölbreytni hefur verið viðvarandi.
b) Húsnæðisuppbygging í minni byggðarlögum. Víða á landsbyggðinni hamlar markaðsbrestur byggingu íbúðarhúsnæðis vegna þess að byggingarkostnaður er hærri en markaðsvirði fullbúinna eigna. Mikilvægt er að aðgerðir byggðaáætlunar leiði til raunhæfra fjármögnunarúrræða og að árangur verði meðal annars mældur í fjölgun íbúða.
c) Nýliðun í landbúnaði. Byggðarráð fagnar því að nýliðun í landbúnaði fái sérstaka athygli í byggðaáætlun. Landbúnaður er mikilvæg undirstaða atvinnulífs og búsetu í dreifbýli og því brýnt að skapa raunhæfar forsendur fyrir nýja aðila til að hefja búskap og fyrir kynslóðaskipti á bújörðum. Helstu hindranir felast meðal annars í mikilli fjármagnsþörf, háu verði bújarða og framleiðsluréttinda og takmörkuðu aðgengi að hagstæðri fjármögnun. Mikilvægt er að aðgerðin leiði til raunhæfra stuðningsúrræða, með skýrri fjármögnun og tímasettri framkvæmd. Árangur hennar verði meðal annars metinn út frá fjölda nýliða sem hefja búskap, fjölda kynslóðaskipta og því hvort stuðningsúrræðin stuðli að áframhaldandi búsetu og atvinnustarfsemi í dreifbýli.
d) Óstaðbundin störf og staðsetning ríkisstarfa. Byggðarráð tekur undir mikilvægi þess að fjölga opinberum störfum utan stærstu þéttbýlissvæða. Nauðsynlegt er þó að setja mælanleg markmið um fjölgun slíkra starfa og fylgjast með dreifingu þeirra milli landshluta og byggðarlaga. Samkvæmt Byggðastofnun fjölgaði stöðugildum ríkisins um 538 árið 2024 og urðu 491 þeirra, eða yfir 91%, til á höfuðborgarsvæðinu. Sama ár fækkaði stöðugildum ríkisins í Húnaþingi vestra um níu, eða 11,3%. Byggðarráð ítrekar því ósk sína úr umsögn um hvítbók um byggðamál frá 10. ágúst 2026 um að aðgerðum B.1 og B.2 fylgi bindandi og mælanleg markmið, svo sem lágmarkshlutfall nýrra ríkisstarfa utan höfuðborgarsvæðisins.
e) Samgöngur í dreifbýli. Byggðarráð fagnar áherslum á endurskoðun hönnunarforsendna umferðarminni tengivega með það að markmiði að flýta lagningu bundins slitlags. Mikilvægt er að verkefnið leiði til raunverulegra framkvæmda og mælanlegra umbóta. Við forgangsröðun þarf að horfa til skólaaksturs, atvinnusóknar, umferðaröryggis og umferðar ferðamanna, auk hefðbundinna umferðartalna.
f) Stórþörungarækt. Byggðarráð fagnar því að í tillögunni sé sérstök aðgerð um skýrari lagaumgjörð stórþörungaræktar. Slík aðgerð getur skapað forsendur fyrir nýrri atvinnustarfsemi á landsbyggðinni, meðal annars í Húnaþingi vestra þar sem áhugi er á uppbyggingu stórþörungaræktar. Mikilvægt er að skýrt regluverk leiði til skilvirks leyfisveitingaferlis og raunhæfra tækifæra til atvinnuuppbyggingar. Þegar hafa verið lögð fram drög að frumvarpi um málið sem ráðið veitti umsögn um.
Þessi dæmi sýna að árangur byggðaáætlunar verður að meta út frá raunverulegum áhrifum á búsetuskilyrði og atvinnulíf. Skýrsla eða greining skilar engu fyrr en eftir henni er farið.
Byggðarráð leggur til að:
-Fyrir hverja aðgerð liggi fyrir skýr fjármögnunaráætlun, ábyrgðaraðili og tímasett markmið.
-Gerð verði grein fyrir því hvort framkvæmd aðgerða feli í sér kostnað eða nýjar skuldbindingar fyrir sveitarfélög.
-Ekki verði lagðar nýjar fjárhagslegar skyldur á sveitarfélög án þess að viðunandi fjármögnun fylgi.
-Árangursmælikvarðar endurspegli raunverulegar breytingar á búsetuskilyrðum, svo sem fjölgun starfa, aukið húsnæðisframboð, bætt aðgengi að þjónustu og uppbyggingu innviða.
-Reglulega verði birt yfirlit yfir framvindu, fjármunanotkun og árangur aðgerða. Slíkt hefur verið gert með gildandi áætlun. Þó virðist sem þær upplýsingar hafi ekki verið uppfærðar nýlega. Mikilvægt er að huga vel að þessum þætti í framkvæmd áætlunarinnar.
Lokaorð
Byggðarráð Húnaþings vestra tekur undir meginmarkmið tillögu að byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041 en telur nauðsynlegt að styrkja fjárhagslegar og framkvæmdalegar forsendur hennar. Byggðarráð leggur sérstaka áherslu á að fjárframlög til byggðamála haldi raunvirði sínu, að kostnaður við grunnþjónustu og þjónustusókn í dreifbýli verði metinn og jafnaður, að tryggð verði eftirfylgni ólokinna verkefna og að aðgerðum fylgi skýr fjármögnun, ábyrgð og mælanleg markmið.
Jöfnun búsetuskilyrða næst ekki eingöngu með stefnumótun, greiningum og tímabundnum þróunarverkefnum. Hún krefst einnig varanlegra aðgerða til að jafna aðstöðumun, styrkja innviði og tryggja að íbúar landsins hafi sambærileg tækifæri til búsetu, atvinnu og aðgengis að grunnþjónustu óháð búsetu.
Byggðarráð telur að með því að styrkja þessa fjóra þætti megi auka verulega líkurnar á því að byggðaáætlun skili þeim árangri sem henni er ætlað að ná.