Spurningar vegna endurskoðunar á stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga

Málsnúmer 2607014

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1291. fundur - 28.09.2026

Sigríður Ólafsdóttir tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað, staðsett innan sveitarfélagsins, á grundvelli 3. og 4. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 14. gr. samþykktar um stjórn Húnaþings vestra nr. 15/2024.
Lagt fram erindi frá innviðaráðuneytinu vegna endurskoðunar á stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga.
Lögð eru fram drög að svörum Húnaþings vestra við erindi og spurningakönnun innviðaráðuneytisins í tengslum við vinnu við gerð grænbókar um stöðu, áskoranir og tækifæri sveitarstjórnarstigsins.

Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og leggur sérstaka áherslu á þau sjónarmið sem fram koma í svörunum um nauðsyn þess að einfalda regluverk, gæta meðalhófs við stjórnsýslukröfur á fámennari sveitarfélög og tryggja að fullnægjandi fjármögnun fylgi lögbundnum verkefnum og jöfnunaraðgerðum.

Sveitarstjóra er falið að senda svörin til innviðaráðuneytisins.
Var efnið á síðunni hjálplegt?