Mál til umsagnar: Sviðslistastefna 2026-2030, mál nr. S-88/2026

Málsnúmer 2606053

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1280. fundur - 22.06.2026

Lögð fram umsagnarbeiðni frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu um mál nr. 88/2026 í samráðsgátt stjórnvalda, dags. 19. maí 2026, Sviðslistastefna 2026-2030.

Byggðarráð Húnaþings vestra fagnar gerð nýrrar sviðslistastefnu og leggur áherslu á mikilvægi þess að tryggja stöðugan og fyrirsjáanlegan stuðning við menningarstarfsemi um allt land. Menningarstarf er ekki aðeins mikilvægt fyrir listalíf og menningararf heldur er það einnig atvinnuskapandi og stór þáttur í byggðaþróun. Fjölmargar rannsóknir, m.a. frá OECD og Evrópusambandinu, ásamt norrænum haggreiningum, sýna að skapandi greinar og menningarstarf skilar verulegum efnahagslegum áhrifum í gegnum atvinnusköpun, ferðaþjónustu, kaup á þjónustu og auknu aðdráttarafli svæða og byggðarlaga. Á Íslandi starfar um 5,7% vinnuafls í menningar- og skapandi greinum og rekstrartekjur þeirra hafa vaxið hratt á síðustu árum.

Handbendi brúðuleikhús á Hvammstanga er skýrt dæmi um menningarstarf á landsbyggðinni sem hefur auk menningarlegra áhrifa haft efnahagsleg áhrif á samfélagið. Leikhúsið er eitt af örfáum atvinnuleikhúsum utan höfuðborgarsvæðisins, hefur skapað sér sterka alþjóðlega stöðu og gegnir lykilhlutverki í menningarlífi, fræðslu og ferðaþjónustu í Húnaþingi vestra og Norðurlandi vestra í heild. Starfsemin skapar bein og óbein störf, eykur aðdráttarafl svæðisins og styrkir samfélagið í heild.

Byggðarráð telur mikilvægt að við mótun opinberrar stefnu og fjárveitinga til sviðslista sé horft til þeirra víðtæku samfélagslegu og efnahagslegu áhrifa sem menningarstarf hefur. Stuðningur við menningu er fjárfesting í atvinnulífi, byggðaþróun, menntun og lífsgæðum landsmanna. Þó öflug áhugamannaleikfélög séu starfandi um land allt eru atvinnuleikhús á landsbyggðinni afar fá og aðeins eitt þeirra nýtur framlaga á fjárlögum ríkisins, Leikfélag Akureyrar. Byggðarráð telur mikilvægt að ríkið marki skýra stefnu um uppbyggingu atvinnuleikhúsa á landsbyggðinni og tryggi þeim sambærilegt rekstraröryggi og öðrum lykilmenningarstofnunum landsins. Báðar tegundir sviðslista, áhugamanna og atvinnu, eru samfélögum mikilvægar. Fjölmargar rannsóknir benda hins vegar til þess að atvinnustarfsemi á sviði lista og menningar hafi víðtækari efnahagsleg áhrif á samfélög en áhugamannastarf, meðal annars vegna þeira þátta sem áður hafa komið fram, svo sem atvinnusköpunar, þjónustukaupa og ferðatengdra áhrifa.

Byggðarráð telur einnig mikilvægt að hlutverk Þjóðleikhússins gagnvart landsbyggðinni verði betur skilgreint og styrkt, meðal annars með reglubundinni sýningastarfsemi, samstarfsverkefnum og auknu aðgengi íbúa landsins alls að starfsemi Þjóðleikhússins. Byggðarráð leggur áherslu á að íbúar landsins eigi að njóta sambærilegs aðgengis að faglegri sviðslistastarfsemi óháð búsetu. Öflug atvinnuleikhús á landsbyggðinni eru lykilforsenda þess. Reynsla Húnaþings vestra sýnir að fagleg menningarstarfsemi getur verið mikilvægur þáttur í atvinnuuppbyggingu, búsetugæðum og ímynd sveitarfélaga á landsbyggðinni.
Var efnið á síðunni hjálplegt?