Viðauki 5 við fjárhagsáætlun 2026

Málsnúmer 2606047

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1279. fundur - 15.06.2026

Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna fyrirhugaðrar uppsetningar á lyftu á Höfðabraut 6.
Eignasjóður
Höfðabraut 6, lyfta kr. 3.300.000.

Hækkun eignfærðrar fjárfestingar er mætt með lækkun handbærs fjár.

Byggðarráð samþykkir viðaukann samhljóða og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Húsfélagið Höfðabraut 6 áformar að fara í lyftuframkvæmd í húsinu. Heildarfjárhæð framkvæmdarinnar er 11.075.400 en eignarhluti sveitarfélagsins er rúm 29%. Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu og því ekki lagt fram málaflokkayfirlit samhliða honum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?