Ráðning sveitarstjóra

Málsnúmer 2606025

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 404. fundur - 11.06.2026

Unnur Valborg Hilmarsdóttir vék af fundi kl. 16:02.
Oddviti gerði fundarhlé kl. 16:04 að beiðni minnihluta.

Fundur hófst að nýju kl. 16:06.

Fulltrúar N-listans lögðu fram eftirfarandi bókun:
„N-listinn styður ráðningu Unnar Valborgar Hilmarsdóttur sem sveitarstjóra Húnaþings vestra. Þar sem N-listinn hafði ekki aðkomu að gerð ráðningarsamningsins munu fulltrúar listans sitja hjá við afgreiðslu málsins.“

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn samþykkir að ráða Unni Valborgu Hilmarsdóttur sem sveitarstjóra Húnaþings vestra kjörtímabilið 2026-2030. Samhliða tillögunni er lagður fram ráðningarsamningur við sveitarstjóra. Í samræmi við 4.mgr. 50.gr. samþykktar um stjórn Húnaþings vestra og 4.mgr. 55.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 er sveitarstjóri prókúruhafi sveitarfélagsins.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Hjá sátu Viktor Ingi, Magnús Vignir og Eygló Hrund.
Unnur Valborg kom aftur til fundar kl. 16:14.
Var efnið á síðunni hjálplegt?