Samningur um leigu á aðstöðu í íþróttamiðstöð - ósk um framlengingu

Málsnúmer 2606016

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1279. fundur - 15.06.2026

Nína Axelsdóttir vék af fundi kl. 14:08 vegna vanhæfis við meðferð 4. dagskrárliðar.

Sigurður Líndal Þórisson varamaður tók sæti við meðferð og afgreiðslu málsins á grundvelli 31. gr. og 48. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Lagt fram erindi frá Evu-Lenu Lohi, dags. 2. júní 2026, þar sem hún óskar eftir framlengingu á leigusamningi um herbergi í íþróttamiðstöðinni vegna sjúkraþjálfunar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlengingu samnings til 30. september 2028.

Sigurður vék af fundi kl. 14:17 og Nína tók sæti að nýju.
Var efnið á síðunni hjálplegt?