Sumarleyfi sveitarstjórnar

Málsnúmer 2605067

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 405. fundur - 18.06.2026

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir að fella niður reglulega fundi sveitarstjórnar í júlí og ágúst í samræmi við 5. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Húnaþings vestra. Næsti reglulegi fundur verður haldinn fimmtudaginn 10. september 2026. Meðan sveitarstjórn er í sumarleyfi fer byggðarráð með sömu heimildir og sveitarstjórn hefur ella enda sé eigi um það ágreiningur í ráðinu eða við sveitarstjóra um ákvörðunina og ef lög og eðli máls mæla ekki gegn því í samræmi við 5. mgr. 32. gr. samþykktar um stjórn Húnaþings vestra.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?