Siðareglur sveitarstjórnar

Málsnúmer 2605064

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 404. fundur - 11.06.2026

Lögð fram eftirfarandi tillaga:

„Sveitarstjórn samþykkir hér með framlagðar siðareglur sveitarstjórnar í samræmi við 29. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og staðfestir þær með undirritun sinni. Siðareglurnar gilda um alla kjörna fulltrúa sveitarstjórnar og fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem sveitarstjórn skipar. Jafnframt felur sveitarstjórn sveitarstjóra að tilkynna innviðaráðuneytinu að siðareglurnar eru óbreyttar frá fyrri siðareglum í samræmi við 1.mgr. 29.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, leggja þær fram á fyrsta fundi nefnda og birta á heimasíðu sveitarfélagsins.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Var efnið á síðunni hjálplegt?