Kosning oddvita og varaoddvita skv. 7. gr. samþykktar um stjórn Húnaþins vestra

Málsnúmer 2605062

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 404. fundur - 11.06.2026

Sigríður Ólafsdóttir leggur fram eftirfarandi tillögu:

„Sveitarstjórn samþykkir að Sigurður Líndal Þórisson verði kosinn oddviti til fjögurra ára og Örn Arnarson verði kosinn varaoddviti til fjögurra ára.“

Tillagan samþykkt með 4 atkvæðum, Viktor Ingi Jónsson, Magnús Vignir Eðvaldsson og Eygló Hrund Guðmundsdóttir greiddu atkvæði á móti tillögunni.

Sigurður Líndal Þórisson nýkjörinn oddviti tók við fundarstjórn. Veitti hann sveitarstjórnarfulltrúum leyfi fyrir því að sveitarstjórnarfulltrúar hafi heimild til að taka til máls úr sæti á fundum sveitarstjórnar. Einnig óskaði hann eftir því að sveitastjórnarfulltrúar þurfi ekki að ávarpa aðra með fullu nafni á fundum sveitarstjórnar. Samþykkt samhljóða.
Var efnið á síðunni hjálplegt?