Mál til umsagnar - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabila o.fl.) - Velferðarnefnd Alþingis

Málsnúmer 2601103

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1269. fundur - 02.02.2026

Lagt fram erindi frá velfeðarnefnd Alþingis, umsögn um 312. mál, atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)
Í frumvarpinu er lögð til sú grundvallarbreyting á atvinnuleysisbótakerfinu að bótatími er styttur úr 30 mánuðum í 18 mánuði. Byggðarráð lýsir yfir áhyggjum af áhrifum fyrirhugaðrar breytingar á fjárhag sveitarfélaga þar sem einsýnt er að aðilar sem verða fyrir langtímaatvinnuleysi þurfi fyrr en ella að leita aðstoðar hjá félagsþjónustu sveitarfélaga. Ekki er hægt að sjá á frumvarpinu að mat hafi verið gert á áhrifum breytingarinnar á fjárhag sveitarfélaga. Þvert á móti er tilgreint í 40. gr. frumvarpsins að ráðherra skuli fyrir 31. desember 2027 leggja mat á hvaða áhrif breytingin hefur haft á fjárhag þeirra. Því er gert ráð fyrir að sveitarfélög beri þann kostnað sem kann að falla til vegna breytingarinnar í tvö ár. Í frumvarpinu er heldur ekki tilgreint með hvaða hætti hugsanlegum kostnaðarauka verði þá mætt. Að mati byggðarráðs eru slík vinnubrögð ámælisverð og ekki í samræmi við þá áherslu sveitarfélaga um að meta í öllum tilfellum áhrif lagasetningar á sveitarfélögin í landinu. Slíkt mat þarf að fara fram áður en lögum er breytt og skýra þarf hvernig hið opinbera hyggst bæta upp þann kostnaðarauka sem breytingin kann að valda. Hér er því verið að velta kostnaði yfir á sveitarfélögin sem ríkið bæri ella. Byggðarráð leggst því gegn því að frumvarpið nái fram að ganga í óbreyttri mynd.
Var efnið á síðunni hjálplegt?