Ósk um heimild til framsals á nafnarétti Hvammstangavallar 2026

Málsnúmer 2601079

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1269. fundur - 02.02.2026

Lagt fram erindi frá meistaraflokksráði Kormáks-Hvatar um heimild til framsals á nafnarétti Hvammstangavallar sumarið 2026.
Fyrir liggur samþykki USVH og Ungmennafélagsins Kormáks. Byggðarráð samþykkir að veita Meistaraflokksráði Kormáks Hvatar heimild til að framselja nafnarétt Hvammstangavallar til styrktar starfi meistaraflokks árið 2026. Um er að ræða heimild til eins árs og skal ráðið hafa samráð við sveitarstjóra um endanlegt val á kostunaraðila.
Var efnið á síðunni hjálplegt?