Umsókn um framlag úr framkvæmdasjóði aldraðra - 2026

Málsnúmer 2601064

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1269. fundur - 02.02.2026

Staðfesting byggðarráðs á fyrirhuguðum framkvæmdum við elstu íbúðir í Nestúni vegna umsóknar um framlag úr framkvæmdasjóði aldraðra.
Byggðarráð staðfestir að á fjárhagsáætlun ársins 2026 er gert ráð fyrir fjármagni til endurbóta á íbúðum í Nestúni sem er í samræmi við áætlanir sveitarfélagsins um uppbyggingu á þjónustu fyrir aldraða. Byggðarráð felur sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs að sækja um fjárframlag úr framkvæmdasjóði aldraðra.
Var efnið á síðunni hjálplegt?