Skipulags- og umhverfisráð - 383

Málsnúmer 2601013F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 400. fundur - 12.02.2026

Fundargerð 383. fundar skipulags- og umhverfisráðs lögð fram til afgreiðslu á 400. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
Ingimar Sigurðsson formaður umhverfis- og skipulagsráðs kynnti fundargerð.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 383 Breyting á deiliskipulaginun hefur verið kynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og grenndarkynnt fyrir eigendum og íbúum aðliggjandi lóða (Lindarvegur 6, 8, 10 og 12 og Kirkjuvegur 2, 4, 6 og 8).
    Athugasemd barst á auglýstum tíma frá eigendum Lindarvegar 8 þar sem m.a. er bent á að upphaflegt deiliskipulag hafi ekki gert ráð fyrir göngustíg á svæðinu og að fyrirhuguð lega hafi áhrif á ráðstafanir á lóðinni; jafnframt er lagt til að stígurinn verði endurskoðaður og færður nær lóð nr. 6, þar sem það geti verið styttra, einfaldara og minna íþyngjandi fyrir grenndina.

    Afgreiðslu málsins er frestað. Umhverfisfulltrúa er falið að ræða við málsaðila vegna framkominna athugasemda og kanna mögulegar útfærslur/leiðréttingar á legu göngustígs og leggja málið fram að nýju að loknum viðræðum við viðkomandi aðila.
  • .2 2509036 DSK-Glæsivellir
    Skipulags- og umhverfisráð - 383 Deiliskipulagstillaga fyrir Glæsivelli í Húnaþingi vestra, landnr. 236629, hefur verið auglýst í samræmi við ákvæði 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir bárust á auglýstum tíma. Skipulags- og umhverfisráð leggur því til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagið. Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 383 Skipulags- og umhverfisráð, með vísan til framlagðra gagna Vegagerðarinnar og framkominnar afgreiðslu Skipulagsstofnunar um að ekki sé þörf á ákvörðun um matsskyldu, leggur til við sveitarstjórn að heimila útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir sjóvörnum á Borðeyri.


    Skipulagsfulltrúa er falið að senda kynningarbréf til aðliggjandi lóðarhafa um fyrirhugaða framkvæmd til kynningar.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 383 Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytingar á deiliskipulagi austan Norðurbrautar á byggingarreit við Lindarveg 6 (L226132). Bókun fundar Magnús Magnússon vék af fundi kl. 15:37.

    Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.

    Magnús Magnússon kom aftur til fundar kl. 15:39.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 383 Skipulags- og umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við veitingu undanþágu frá skilyrði gr. 5.3.2.14 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 um fjarlægð bygginga frá sjó, í máli FRN25030178, enda er bakki við sjó á umræddum stað það hár, miðað við stórstraumsflæði að ekki er talið að stórstraumsflóð eða sjávargangur nái að hinu umrædda mannvirki. Ráðið leggur til við Sveitarstjórn að samþykkja bókun ráðsins og afgreiða til ráðuneytisins umsögn í samræmi við ofangreint.

    Ráðið telur brýnt að árétta að samkvæmt gögnum málsins er um að ræða óleyfisframkvæmd, þar sem engin leyfi hafa verið gefin út af hálfu sveitarfélagsins fyrir umræddu mannvirki. Jafnframt hefur byggingarfulltrúi ítrekað stöðvað framkvæmdir, en að framkvæmdum hafi engu að síður verið haldið áfram þrátt fyrir fyrirmæli um stöðvun. Ráðið telur þetta ámælisvert og áréttar að leyfisveitingar og að farið sé að fyrirmælum séu grundvallarforsenda mannvirkjagerðar í sveitarfélaginu. Ráðið beinir því til landeiganda að hlíta fyrirmælum byggingarfulltrúa og að málinu verði fylgt eftir með viðeigandi hætti innan stjórnsýslu sveitarfélagsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 383 Lögð er fram merkjalýsing fyrir jörðina Gottorp (F2134715) í Húnaþingi vestra, að flatarmáli 297,54 ha, þar sem landamerkjum jarðarinnar er lýst gagnvart aðliggjandi jörðum (m.a. Stóru-Borg, Vatnsenda og Ásbjarnarnesi) og þau afmörkuð m.a. með hnitsettum hornmörkum og uppdrætti.
    Skipulags- og umhverfisráð samþykkir framlagða merkjalýsingu og leggur til við sveitarstjórn að hún verði samþykkt.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 383 Lögð er fram merkjalýsing vegna landskipta, þ.e. stofnun lóðar að stærð 18.000 m², sem fær heitið Mið-Foss, úr sameiginlegu landi jarðanna Efri-Foss (L144021) og Neðri-Foss (L144032). Fram kemur að engin mannvirki séu á hinu stofnaða svæði. Merkjalýsingin er dagsett 3. nóvember 2025 og unnin samkvæmt gögnum frá Káraborg ehf.
    Skipulags- og umhverfisráð samþykkir framlagða merkjalýsingu og leggur til við sveitarstjórn að hún verði samþykkt.
    Bókun fundar Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Skipulags- og umhverfisráð - 383 Lagt var fram minnisblað sem Skúli Húnn tók saman að beiðni skipulagsfulltrúa, sem skýrir afgreiðslu þessa máls á sínum tíma. Umhverfis- og skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að senda minnisblað til málsaðila.
Var efnið á síðunni hjálplegt?