Kvennafrídagurinn 2025

Málsnúmer 2510020

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1258. fundur - 13.10.2025

Lögð fram tillaga að fyrirkomulagi á kvennafrídaginn 24. október 2025.
Framkvæmdastjórn Kvennaárs hefur boðað til kvennaverkfalls þann 24. október þegar 50 ár eru liðin frá því að fyrsti kvennafrídagurinn var haldinn á Íslandi.

Byggðarráð styður réttindabaráttu kvenna og samþykkir að konum og kvárum sem hjá sveitarfélaginu starfa verði heimilt að leggja niður störf á launum þann dag á tímabilinu kl. 14-16 sem er sá tími sem útifundur mun standa yfir á Arnarhóli. Þess er óskað að þau sem kjósa að leggja niður störf tilkynni forstöðumönnum sinna stofnana þar um eigi síðar en 17. október. Forstöðumönnum er falið að gera ráðstafanir varðandi afleysingar eða lokanir ef ekki tekst að manna starfsstöðvar og tilkynna þjónustuþegum um breytingar á þjónustu í tíma.

Var efnið á síðunni hjálplegt?