Landbúnaðarráð - 219

Málsnúmer 2506003F

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1249. fundur - 07.07.2025

Fundargerð 219. fundar landbúnaðarráðs frá 2. júlí sl. lögð fram til afgreiðslu á 1249. fundi byggðarráðs eins og einstök erindi bera með sér.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Landbúnaðarráð - 219 Í erindinu er ferli ákvörðunar við niðurfellingar varnarlínunnar lýst og kemur m.a. fram að samráð hafi verið haft við Bændasamtök Íslands um áformin og engar athugasemdir borist. Landbúnaðarráð lýsir furðu á að ekki hafi verið leitað umsagna hjá sveitarfélaginu þar sem það er beinn aðili málsins ásamt þeim bændum sem á svæðinu búa. Beinir ráðið því til ráðuneytisins að gerð verði breyting á því verklagi.

    Það er ljóst að mikill kostnaður er fólginn í viðhaldi varnargirðinga vegna búfjársjúkdóma. Landbúnaðarráð vill hins vegar vara við því að of bratt verði farið í sparnað við viðhald þeirra girðinga sem eftir eiga að standa. Nauðsynlegt er, í kjölfar fækkunar varnarlína, að þær línur sem þó eru eftir verði almennilega viðhaldið og betur en undanfarin ár, en gríðarlegur skortur hefur verið á viðhaldsfé í varnargirðingar um árabil. Þá vill ráðið árétta að þó varnargirðingar hafi undanfarna áratugi verið helst nýttar sem varnir gegn riðu þá voru þær upphaflega lagðar sem vörn gegn mæðiveiki og hafa einnig nýst sem varnir gegn garnaveiki. Ómögulegt er að spá fyrir um hvað bíður okkar í framtíðinni hvað innflutning á sjúkdómum varðar og eðlilegt væri að einhverjir varnaglar væru settir við niðurfellingar varnarlína með tilliti til þess.

    Að auki skal áréttað að ef Matvælastofnun/atvinnuvegaráðuneyti ákveða að leggja niður ákveðnar varnarlínur er það þeirra en ekki sveitarfélags/ bænda/landeigenda að hreinsa í burtu ónýtar girðingar sem eftir kunna að vera.

    Landbúnaðarráð leggur því til við byggðarráð að sveitarfélagið þiggi ekki boð um að eignast varnarlínuna. Ráðið beinir því jafnframt til ráðuneytisins að þeim landeigendum sem eiga jarðir að girðingunni verði boðið að eignast línuna sér að kostnaðarlausu enda afmarka línurnar í einhverjum tilfellum jarðir. Kjósi þeir að þiggja hana ekki sé það Matvælastofnunar/atvinnuvegaráðuneytis að fjarlægja línuna á sinn kostnað.
    Bókun fundar Byggðarráð tekur undir bókun landbúnaðarráðs.
  • Landbúnaðarráð - 219 Tilkynningunni fylgja myndir sem augljóslega sýna lamb sem hefur orðið fyrir barðinu á dýrbít. Reglulega berast fréttir af slíku sem sýnir mikilvægi þess að hugað sé að því að refastofninum sé haldið í skefjum. Stjórnvöld eru hvött til að gæta þess að fjármagn til slíkra verkefna skerðist ekki enda er um að ræða mikið hagsmunamál fyrir bændur auk dýravelferðarsjónarmiða og fuglaverndar.
  • Landbúnaðarráð - 219 Beiðninni fylgir kort af áætluðu tínslusvæði. Ekki var tínt á því svæði sem sótt var um leyfi fyrir á árinu 2024. Landbúnaðarráð samþykkir beiðnina en leggur áherslu á að tínsla hefjist ekki fyrr en að vegir hafi opnað og jafnframt að þeir sem tínsluna annast gangi vel um svæðið. Bókun fundar Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • .4 2503002 Styrkvegir 2025
    Landbúnaðarráð - 219 Ekki hefur borist tilkynning frá Vegagerðinni vegna úthlutunar styrkvegafjár á árinu 2025. Landbúnaðarráð harmar seinagang við úthlutunina. Nú er farið að líða á þann tíma sem er til framkvæmda og afleitt að töf verði á þeim vegna þessa.
    Framlag til styrkvega samkvæmt fjárhagsáætlun sveitarfélagsins er kr. 3.250.000.
    Eftirfarandi tillaga um skiptingu framlags sveitarfélagsins var samþykkt samhljóða:
    a) Til afréttavega á Víðidalstunguheiði kr. 1.365.000.
    b) Til afréttavega í Miðfirði kr. 1.040.000.
    c) Til afréttavega í Hrútafirði austur kr. 585.000.
    d) Til vegar ofan Hvammstanga upp á Vatnsnesfjall kr. 260.000.

    Fjallskilastjórnir sjá um framkvæmdir við styrkvegi á sínum svæðum, að veginum yfir Brandagilshálsi undanskildum sem verður á ábyrgð sveitarstjóra. Landbúnaðarráð samþykkir samræmt gjald vegna vinnu við styrkvegina í sveitarfélaginu, þar sem gjald fyrir dráttarvél með vagni og manni verði að hámarki kr. 18.500 pr.klst. með vsk. Vinnu við styrkvegina skal vera lokið fyrir fyrstu göngur og lokafrestur til að skila inn reikningum vegna vinnunnar er 15. október nk. Fjallskilastjórnir skulu jafnframt skila greinargerð um framkvæmdir ársins til sveitarstjóra.

    Þegar framlag Vegagerðarinnar árið 2025 verður ljóst, verður því úhlutað í sama hlutfalli og framlag sveitarfélagsins. Fjallskilastjórnir verða upplýstar um niðurstöðuna eins fljótt og auðið er.

    Bókun fundar Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • Landbúnaðarráð - 219
Var efnið á síðunni hjálplegt?