Norðurbraut, endurnýjun lagna í götu.

Norðurbraut, endurnýjun lagna í götu.

Mánudaginn 15. ágúst nk. munu framkvæmdir hefast við endurnýjun vatns- og fráveitulagna Norðurbrautar, á milli Hlíðarvegar og Hvammavegar. Kappkostað verður að ljúka verkinu á sem skemmstum tíma.

Til að byrja með verður lokað fyrir bílaumferð í skamman tíma við gatnamót Norðurbrautar og Hvammavegar og umferðinni sem kemur að norðan beint um hjáleiðir. Á meðan framkvæmdir standa yfir verður reynt að hafa að lágmarki annan helming Norðurbrautarinnar opinn fyrir umferð að mestu. Einnig verður reynt að hafa gangstéttar opnar fyrir gangandi/hjólandi umferð en mælt er með að fólk fari aðrar leiðir ef þess er kostur.

 

Ingibjörn Pálmar Gunnarsson og Kristján Ársælsson verktakar sjá um jarðvegsframkvæmdir.

 

Að framkæmd lokinni mun fljótlega verða farið í malbiksyfirlögn á þessum kafla Norðurbrautar á vegum Vegagerðarinnar.

 

Rask og truflanir á afhendingu á köldu vatni verður óhjákvæmilegt meðan á framkvæmdum stendur, en reynt verður að halda því í lágmarki. Íbúar eru beðnir um að sýna framkvæmdinni þolinmæði.

 

Hægt er að hafa samband við Benedikt Rafnsson, í síma 831-7100 eða á netfangið benedikt@hunathing.is, vegna framkvæmdarinnar.

 

Veitusvið

Var efnið á síðunni hjálplegt?