Framkvæmdir á göngustíg milli Lindarhverfis og Hvammstangabrautar

Vegna framkvæmda á göngustíg milli Lindarvegshverfis og Hvammstangabrautar verður göngustígnum lokað næstu daga. Verið er að grafa skurð í gangstígnum til þess að skipta um stofnlög frá vatnstanki til Hvammstangabrautar. Einnig má búast við að göngubrúin yfir Syðri-Hvammsá við grunnskólann verði einnig lokuð. 

Biðlað er til fólks að finna aðra gönguleiðir á meðan framkvæmdir eru í gangi.

Vonast er til að framkvæmdir taki fljótt af og beðist er velvirðinar á þeim óþægindum sem þetta kanna að valda.

Veitustjóri

 

 

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?