Hér eru ýmsar nytsamlegar upplýsingar fyrir þau sem eru að hugsa um eða ætla sér að flytja í Húnaþing vestra.
Skólar
Grunnskóli Húnaþings vestra staðsettur á Hvammstanga. Við skólann eru um 130 nemendur í 10 bekkjardeildum. Skólastarfið er metnaðarfullt og er skólinn rekinn í glæsilegu og rúmgóðu húsnæði. Nemendum í 1. til 4. bekk býðst lengd viðvera í frístund sem er opin alla virka daga frá lokum skóladags og til kl. 16:00. Nemendur Grunnskólans hafa náð frábærum árangri í hvers kyns keppnum og borið hróður skólastarfsins víða. Má þar nefna sigur í Fiðringi hæfileikakeppni skóla á Norðurlandi árið 2025, þátttöku stúlkahljómsveitar í Málæði árið 2024 og nemanda í 10. bekk 2025 þátttaka í úrslitum Skólahreysti ár eftir ár með góðum árangri svo fátt eitt sé talið og sigur í keppninni 2026. Menntastefna Grunnskóla Húnaþings vestra.
Tónlistarskóli Húnaþings vestra er staðsettur í Grunnskólanum í glæsilegu nýju húsnæði. Kennt er á öll helstu hljóðfæri auk söngs. Einnig gefst ungum nemendum kostur á að vera í forskóla þar sem fleiri en einn nemandi stunda nám á sama tíma. Samkvæmt íbúakönnun er ánægja íbúa með tónlistarskólann önnur mesta á landinu.
Leikskólinn Ásgarður er þriggja deilda leikskóli með fjölbreytta vistunarmöguleika, allt frá 4 til 8 klst. daglega. Börn eru tekin inn í skólann við 12 mánaða aldur. Engir biðlistar! Samkvæmt íbúakönnun er ánægja íbúa með leikskólann sú sjöunda mesta á landinu.
Dreifnám. Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra starfrækir framhaldsdeild á Hvammstanga. Nemendur geta stundað dreifnám við FNV frá Hvammstanga. Markmiðið er að nemendur geti lokið almennum greinum iðnbrauta og kjarnagreinum stúdentsbrauta í heimabyggð.
Á sumrin er starfræktur vinnuskóli fyrir ungmenni.
Á sumrin er starfrækt Krakkasveifla með metnaðarfullu og fjölbreyttu starf fyrir öll börn á aldrinum 6-13 ára (1. - 7. bekkur) þar sem skapandi starf, hreyfing og útivera eru í forgrunni
Í Húnaþingi vestra er rekið mjög fjölbreytt og þróttmikið íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarf. Sjá HÉR.
Hjá Ungmennafélaginu Kormáki greiða börn aðeins eitt gjald en geta mætt á æfingar í eins mörgum greinum og þau vilja. Er gjaldi fyrir hvert barn stillt í hóf og var veturinn 2025-2026 kr. 15.000 á misseri.
Rafíþróttadeild er starfandi í nýju og glæsilegu húsnæði í Tæknismiðjunni í Félagsheimilinu Hvammstanga.
Dansskóli Menningarfélags Húnaþings vestra býður upp á dansnám fyrir börn, ungmenni og fullorðna með kennurum á heimsmælikvarða. Skólinn hefur náð frábærum árangri og náði afrekshópur skólans þeim árangri sumarið 2025 að fá keppnisrétt í úrslitum Dance World Cup á Spáni. Árið 2026 fengu tveir nemendur keppnisrétt í sömu keppni á Írlandi.
Húnaþing vestra greiðir frístundastyrk fyrir börn frá fæðingu til 18 ára aldurs.
Félagsmiðstöðin Órion er fyrir ungmenni í 5.-10. bekk.
Starf fyrir börn og ungmenni í Hvammstangakirkju er fjölbreytt, kirkjuskóli, TTT og æskulýðsstarf.
Unnið er að uppsetningu samfélagsmiðstöðvar í Félagsheimilinu Hvammstanga þar sem verður aðstaða fyrir fjölbreytt félags- og tómstundastarf. Fyrirmyndir að verkefninu eru Oodi samfélagsmiðstöðin í Helsinki og Möbelfabrikken á Bornholm. Verður starfsemin þróuð í skrefum á næstu misserum samhliða umfangsmiklum framkvæmdum og endurbótum á húsakynnum Félagsheimilisins.
Heilbrigðis- og félagsþjónusta
Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) rekur heilsugæslustöð og dvalarheimili á Hvammstanga. Tveir læknar eru búsettir á staðnum. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu heilbrigðisstofnunarinnar. Samkvæmt íbúakönnunum eru íbúar Húnaþings vestra þeir ánægðustu á landinu með heilbrigðisþjónustu.
Lyfja rekur útibú frá starfsstöð sinni á Sauðárkróki í húsnæði Heilsugæslunnar á Hvammstanga.
Tannlæknir kemur reglulega á Hvammstanga og er með aðstöðu í húsnæði Heilsugæslustöðvarinnar.
Kvensjúkdómalæknar hafa nýverið hafið komur á Heilsugæslustöðina.
Skimun fyrir brjóstakrabbameini fer fram á Heilsugæslustöðinni með reglulegu millibili.
Húnaþing vestra og HVE voru með þeim fyrstu á landinu til að samþætta þjónustu fyrir eldri borgara í Snældunni heimaþjónustu. Samkvæmt íbúakönnun er ánægja íbúa með þjónustu við aldraða sú þriðja mesta á landinu og með dvalarheimili sú fimmta mesta á landinu. Sveitarfélagið í samvinnu við HVE er aðili að verkefninu Gott að eldast.
Skagafjörður er leiðandi sveitarfélag í samstarfi sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra um þjónustu við fatlað fólk.
Skagafjörður er leiðandi sveitarfélag í samstarfi sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra og Fjallabyggðar um Barnavernd Mið Norðurlands.
Verslun og þjónusta
Á Hvammstanga rekur Kaupfélag Vestur-Húnvetninga verslun, byggingar- og búvöruverslun ásamt pakkhúsi. Í pakkhúsi er pakkaafgreiðsla fyrir Dropp. Samkvæmt íbúakönnun voru íbúar í sveitarfélaginu þeir þriðju ánægðustu á landinu með vöruúrval í sveitarfélaginu.
Á Hvammstanga er Verslunin Hlín þar sem boðið er upp á blóm, hannyrða-, föndur- og gjafavörur.
Langafit handverkshús er á Laugarbakka þar sem boðið er upp á handverk og hægt að fá vöfflur og kaffi.
Bardúsa á Hvammstanga hefur til sölu ýmiskonar handverk og gjafavöru.
Póstbox frá Íslandspósti er á Hvammstanga. Póstbíll kemur daglega og dreifir bréfum og heimsendum pökkum á Hvammstanga. Landpóstur sér um dreifingu pósts í dreifbýli.
Húsnæði
Umhverfissvið veitir allar upplýsingar um lóðir og framkvæmdir.
Lausar lóðir sem tilbúnar eru til úthlutunar á deiliskipulögðum svæðum í Bakka- og Grundartúni og á Lindarvegi á Hvammstanga.
Húnaþing vestra rekur leiguíbúðakerfi og eru leiguíbúðir sveitarfélagsins alls 40. Þar er um að ræða 22 leiguíbúðir fyrir aldraða, 14 félagslegar leiguíbúðir og 4 almennar leiguíbúðir.
Brák íbúðafélag á og rekur 6 íbúðir við Lindarveg á Hvammstanga ásamt 8 íbúðum í nýbyggðu fjölbýlishúsi við Norðurbraut.
Áform eru uppi um byggingu lífsgæðakjarna fyrir 50 ára og eldri á svokölluðum Miðtúnsreit. Unnið er að deiliskipulagi en gert er ráð fyrir allt að 15 íbúðaeiningum á svæðinu. Reiturinn er miðsvæðis á Hvammstanga og er stutt í alla þjónustu.
Sveitarfélagið leggur áherslu á að styðja við og hvetja til sjálfsprottins menningarstarfs. Í Húnaþingi vestra er lifandi og fjölbreytt menningarlíf. Samkvæmt íbúakönnunum er ánægja með menningarlíf í sveitarfélaginu sú næst mesta á landinu á eftir Akureyri. Einnig er ánægja íbúa með afþreyingu sú fjórða mesta á landinu.
Leikflokkur Húnaþings vestra setur reglulega upp sýningar og hafa uppfærslur flokksins í tvígang fengið viðurkenningu sem áhugamannaleiksýning ársins og verið sýndar á fjölum Þjóðleikhússins.
Stúdíó Handbendi er starfrækt á Hvammstanga. Handbendi er alþjóðlegt brúðuleikhús sem setur upp fjölbreyttar sýningar og stendur fyrir alþjóðlegri brúðulistahátíð á nokkurra ára fresti, HIP fest. Í Stúdíóinu fer fram fjölbreytt menningarstarf annað, m.a. listasmiðjur fyrir börn, ýmiskonar leiksýningar, upplestrar og margt fleira. Auk þess er þar "residensía" fyrir alþjóðlega listamenn.
Félagsstarf er afar fjölbreytt í sveitarfélaginu. Félag eldri borgara heldur úti mjög öflugu starfi fyrir sína félagsmenn í Glaumbæ í samfélagsmiðstöðinni í Félagheimilinu Hvammstanga. Einnig er starfræktur Soroptimistaklúbbur við Húnaflóa, Lionsklúbbur er starfandi í sveitarfélaginu sem og björgunarsveit.
Skrifstofuaðstaða
Skrifstofusetrið Útibúið er rekið á Hvammstanga. Þar er boðið upp á vandaða aðstöðu og gott samfélag til dæmis fyrir þau sem vinna störf án staðsetningar.
Stjórnsýsla, Ráðhúsi Húnaþings vestra
Í Ráðhúsinu eru skrifstofur og sameiginleg símsvörun fyrir fjármála- og stjórnsýslusvið, fjölskyldusvið og framkvæmda-og umhverfissvið.
Í Ráðhúsi Húnaþings vestra er hægt að fá allar almennar upplýsingar um þjónustu og starfsemi sveitarfélagsins en allar þær upplýsingar er líka að finna víðs vegar á heimasíðu sveitarfélagsins, til dæmis undir síðunni þjónusta.
Hér er hægt að panta viðtalstíma hjá starfsmönnum Ráðhússins.
Um orkudreifingu í Húnaþingi vestra sjá Rarik og Orkubú Vestfjarða (vestanverður Hrútafjörður).
Sorpþjónusta
Sorphirða í Húnaþingi vestra er með þeim hætti að tvær tunnur eru við hvert heimili, í þéttbýli og dreifbýli, önnur tunnan er fyrir almennt heimilissorp og hin tunnan er fyrir endurvinnsluefni. Tunnurnar er hirtar á þriggja vikna fresti allt árið um kring nema í júlí og ágúst þá er hirt á tveggja vikna fresti. Unnið er að uppfærslu á sorphirðukerfi með áherslu á aukna flokkun.
Gámastöðin Hirða er staðsett við Höfðabraut 34a á Hvammstanga og þar er opið fyrir móttöku úrgangs frá almenningi og fyrirtækjum þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 14:00 til 17:00 og á laugardögum frá kl. 11:00 til 15:00. Frekari upplýsingar HÉR
Dósa- og flöskumóttaka er í pakkhúsi Kaupfélags Vestur-Húnvetninga.
Hér má sjá útkomu Húnaþings vestra á nokkrum þáttum íbúakönnunar sem unnin var árið 2023. Sjá nánar hér.