Lokamót Húnvetnsku liðakeppninnar

Lokamót Húnvetnsku liðakeppninnar verður laugardaginn 1. apríl, og verður að vera búið að skrá á miðnætti þriðjudagsins 28 . mars. Skráning verður í gegnum skráningakerfi Sportfengs.

Keppt verður í 1. flokki, 2. flokki, 3. flokki, unglingaflokki og barnaflokki. Pollar munu keppa í tvígangi. 

Í öllum flokkum verður keppt í T3 og er forkeppnin riðin:
Hægt tölt,hægt niður á fet og skipt um hönd.
Hægt tölt, greinilegur hraðamunur á langhliðum, hægt tölt á skammhliðum.
Yfirferðartölt

Við ætlum að reyna að keppa í skeiði nú í ár en mótanefnd áskilar sér rétt á að fella niður þá grein ef völlurinn verður ekki í standi en hann verður metinn á föstudeginum fyrir mót.
Keppendur verða látnir vita á föstudeginum hvernig málin standa.

Hér fyrir neðan má sjá leiðbeiningar fyrir skráninguna, annars er slóðin þessi: http://skraning.sportfengur.com/ og farið undir mót. ATH, þeir sem ætla að skrá sig í 3. flokk velja ungmennaflokk. Sportfengur býður ekki upp á 3. flokk. 
Skráningargjaldið er 2.500 fyrir fullorðna og 1.500 fyrir unglinga 17 ára og yngri. Skráningargjöld verður að millifæra svo skráning sé tekin gild. Foreldrar polla sem ætla að skrá sig sendi upplýsingar á thytur1@gmail.com Ef einhver skráir sig eftir að skráningu er lokið er skráningargjaldið 4.000 kr.
Knapar eru beðnir að yfirfara skráningar vel og skila breytingum inn fyrir klukkan 18 á fimmtudag á netfangið: thytur1@gmail.com


Bæjarliðin sem kepptu síðast eru beðin um að tilkynna hverjir keppa fyrir þeirra hönd á þessu móti fyrir kl 18 fimmtudaginn 30 mars á netfangið thytur1@gmail.com og einnig eru þau bæjarlið sem enn eiga eftir að borga skráningagjald beðin um að greiða þau fyrir mót.
Kidka gefur verðlaunin fyrir bæjarkeppnina í ár !!!


Þeir sem kjósa að keppa utan liðakeppninnar geta ekki unnið til stiga í einstaklingskeppninni. 

 

Aðgangseyrir er 500 en frítt fyrir 12 ára og yngri


Mótanefnd

Var efnið á síðunni hjálplegt?