14. október kl. 19:15-21:00
Viðburðir
Grunnskóli Húnaþings vestra
USVH býður á fyrirlestur um andlega heilsu og næringu.
Fyrirlesturinn verður í Grunnskóla Húnaþings vestra. Við hvetjum ykkur eindregið til að mæta
Fyrirlesturinn verður í Grunnskóla Húnaþings vestra. Við hvetjum ykkur eindregið til að mæta
Margrét Lára er klínískur sálfræðingur og íþróttafræðingur. Hún fer yfir mikilvægi andlegs styrks til þess að takast á við streitu, erfiðleika og/eða mótlæti í íþróttum og í lífinu sjálfu. Margrét Lára fer yfir nokkra þætti sem að fólk getur hugað að til þess að auka líkur á árangri og aukið ánægju þeirra á æfingum, keppni, lífi og starfi. Einnig fer Margrét Lára yfir mikilvægi svefnsins sem er okkar helsti orkugjafi.
Elísa Viðarsdóttir verður með fyrirlestur um mikilvægi næringar, hvíldar og margt fleira. Ekki er nóg að heildarneysla sé í samræmi við orkuþörf heldur þarf einnig að huga að samsetningu fæðunnar. Orkuefnin, prótein, fita og kolvetni eru öll nauðsynleg líkamanum en í mismiklu magni á mismunandi tíma. Þetta allt mun Elísa Viðarsdóttir matvæla-og næringarfræðingur fara yfir með ykkur.