21. apríl kl. 20:00-23:59
Viðburðir
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra standa fyrir opnum fundi um málefni sem snertir bæði landeigendur, orkufyrirtæki og samfélagið í heild.
Þriðjudaginn 21. apríl kl. 20:00 verður haldinn fundur á Hótel Laugarbakka þar sem Torfi Jóhannesson kynnir samantekt sem unnin var fyrir SSNV og SSV. Í samantektinni er sjónum beint að því hvernig nágrannalönd Íslands – Danmörk, Noregur og Svíþjóð – hafa hagað greiðslum til landeigenda fyrir notkun lands undir línustæði. Markmiðið er að varpa ljósi á ólíkar leiðir, bera saman lagaumhverfi og skoða hvernig nýta megi þessa reynslu til að móta skýrari, réttlátari og nútímalegri umgjörð um slíkar greiðslur hér á landi.
Að lokinni kynningu fara fram pallborðsumræður undir stjórn Gísla Einarssonar. Í pallborðinu sitja auk Torfa fulltrúar landeigenda, Landsnets og atvinnulífsins og verður þar tekist á um sjónarmið ólíkra hagsmunaaðila og horft til framtíðar í uppbyggingu raforkuinnviða.
Fundurinn er öllum opinn og eru áhugasamir hvattir til að mæta og taka þátt í umræðu um eitt af lykilmálum orkuskipta og uppbyggingar innviða á Íslandi.