6. apríl kl. 14:00-23:59
Viðburðir
Þar sem það heppnaðist svo skemmtilega í fyrra þá ætlum við að endurtaka leikinn og halda folalda- og unghrossasýningu á Sindrastöðum þann 06. apríl 2026! Sýningin hefst kl. 14:00.
Sýningin er opin öllum og hægt er að koma með folöld og tryppi allt að þriggja ára aldri. Tilvalið tækifæri til að kynna t.d. efnilega ungfola!
Eins og í fyrra þá ætlar Eyþór Einarsson að dæma og verða niðurstöður skráðar á síðunni icefoal.com. Dæmt verður í flokki hestfolalda, merfolalda, ungfola og unghryssna. Einnig verður veitt verðlaun fyrir glæsilegasta tryppið sýningarinnar.
Öll folöld og tryppi verða að vera örmerkt og grunnskráð í Worldfeng til að eiga þátttökurétt!
Skráning fer fram í gegnum netfangið sonja@laekjamot.is og við skráningu þarf að koma fram IS-númer tryppis.
Skráningargjald er 2.500 kr. fyrir félagsmenn HSVH en 3.500 kr. fyrir aðra. Millifæra inn á reikning 0159-26-000992 kt. 6311882579 við skráningu.
Skráningu lýkur föstudagskvöldið 03.04.25 kl. 23.59.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Stjórn Hrossaræktarsamtaka V-Húnavatnssýslu
Stjórn Hrossaræktarsamtaka V-Húnavatnssýslu