Bjórskóli Sigurðar Líndal

Bjórunnendur ættu að vera kunnugir þeirri staðreynd að bjór er þriðji vinsælasti drykkurinn í heiminum á eftir vatni og te. Hugsanlega er það einnig þekkt staðreynd (mögulega umdeild) að það sé talið heilsubætandi að innbyrða bjór t.d talið koma í veg fyrir krabbamein, hefur yngjandi áhrif, örvar heilastarfsemi ásamt fleiru...
Einnig mætti telja upp fleiri sturlaðar staðreyndir um bjór. Vissir þú að samkvæmt Ásatrú sá geitin Heiðrún um að gefa einherjum í Valhöll mjöð (beisiklí bjór) í stað mjólkur? Eða hafðir þú heyrt um flugræningjann sem lagði niður vopn sín og gafst upp í skiptum fyrir meiri bjór? 
Ef þú vilt læra um sterkasta eða dýrasta bjórinn í heimi ásamt öðrum skemmtilegum fróðleik um bjór skaltu skrá þig í Bjórskólann á Sjávarborg. 

Miðaverð er aðeins 4500kr og innifalið í því er eftirfarandi: 
-Upphitunarbjór til að örva heilasellurnar fyrir því sem koma skal
-Smakk af 5 mismunandi bjórum
-Einn bjór í lokinn til að innsigla allan fróðleikinn sem kemur frá heimamanninum og bjór-gúrúinum Sigurði Líndal. 

Eins og sönnum bjór-nörda sæmir mun hann kynna ykkur fyrir nokkrum af sínum uppáhalds bjórum. Þið munið læra um sögu þeirra, staðreyndir, bragð, áferð, lit og kraft. 
Bjórskólinn á Sjávarborg er skóli án prófa og er þar því bjórdrykkja eina leiðin til þekkingar og árangurs!

Mælum með að þú tryggir þér miða í tíma. Takmarkaður fjöldi miða. 
Miðapantanir hér í gengum Facebook, í síma 4513131 eða í gegnum tölvupóst sjavarborg@gauksmyri.is

Sjá tengil á viðburð

Var efnið á síðunni hjálplegt?