Nansen

Söguleikurinn, Nansen á Þingeyri, segir af einni eftirminnilegustu
heimsókn í sögu þorpsins Þingeyri. En það er án efa þegar
landkönnuðurinn norski Friðþjófur Nansen dvaldi á eyrinni um tveggja
vikna skeið áður en hann lagði í sína fræknu för á Grænlandsjökul. Hvað
var Nansen að gera allan þennan tíma vestra? Það kemur allt í ljós í
þessari einstöku leiksýningu sem var sýnd við miklar vinsældir á síðasta
leikári.


Elfar Logi Hannesson er bæði leikari og höfundur leiksins.
Búningahönnuður er Þ. Sunnefa Elfarsdóttir og leikstjórn annast
Marsibil G. Kristjánsdóttir.

Sýningartími: 60 mín
Miðaverð: 3.800.- kr

Var efnið á síðunni hjálplegt?