Happy Halloween

Eins og síðustu ár verður hrekkjavakan haldin hátíðleg og hrekkjavöku partýið heldur sínum stað.

Það verður haldið laugardaginn 28. október.

Partýið er frá kl. 16:00-18:00 í Órion og eftir það verður gengið í hús. Þeir bæjarbúar sem eru tilbúnir í grikk eða gott eru vinsamlegast beðnir að setja lukt, ljós eða skreytingar við hús sín til að sýna börnunum að þau séu velkomin. Krakkar eru hvattir til að koma með hryllilegar en bragðgóðar veitingar til að leggja á hlaðborð í partýinu. Verðlaun verða veitt fyrir besta búninginn í partýinu.

P.S. Endilega setja endurskinsmerki og/eða láta börnin hafa vasaljós þar sem farið er að dimma verulega á þessu árstíma.

P.P.S. Einnig verða veitt verðlaun fyrir best skreytta húsið.

            

Styrktaraðilar: Húnaþing vestra, Kaupfélag Vestur Húnvetninga og Söluskálinn Hvammstanga.

Kv. Bryndís, Rakel, Júlía, Ásdís, Diljá og Hafdís.

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?