73. Fundur

73. Fundur ungmennaráðs haldinn fimmtudaginn 16. febrúar 2023 kl. 16:15 Ráðhús.

Fundarmenn

Patrekur Óli Gústafsson, Jenný Dögg Ægisdóttir, Svava Rán Björnsdóttir, Margrét Ylfa Þorbergsdóttir, Lísa Marie Lundberg, Valgerður Alda Heiðarsdóttir og Ástríður Halla Reynisdóttir.

Starfsmenn

Tanja Ennigarð, íþrótta- og tómstundafulltrúi og Sigurður Þór Ágústsson sviðsstjóri fjölskyldusviðs.

Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson

Dagskrá.

1. Fyrirhuguð lokun á sundlaug vegna framkvæmda.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir fyrirhugaðar framkvæmdir í apríl og greindi frá því að búast má við lokun í þrjá mánuði á sundlaugarsvæði. Rækt, íþróttahús og sturtur verða opnar. Ungmennaráð gerir ekki athugasemdir við að ræktinni verði lokað páskadagana þegar sundlaug er hvort eð er lokuð.

2. Undirbúningur fundar með sveitarstjórn.
Rætt um hvaða málefni ungmennaráð vill ræða við sveitarstjórn. Eftirfarandi vill ungmennaráð ræða:

  • Umgjörð og erindisbréf ungmennaráðs, t.d. fjármál, launamál, mál til umsagnar til ráðsins.
  • Heilsueflandi samfélag – áhersluþættir ungmenna.
  • Umhverfis- og aðgengismál.
  • Kosningaloforð.
    Ungmennaráð óskar þess að sveitarstjóri setji fundartíma og greini ungmennaráðsfulltrúum frá honum sem fyrst.

3. Gangbraut yfir Brekkugötuna.
Ungmennaráð samþykkir að Ástríður Halla Reynisdóttir og Svava Rán Björnsdóttir verði í vinnuhópi ásamt sviðsstjóra fjölskyldusviðs sem móti tillögur um umferðaröryggismál og sorpílát í þéttbýli. Sviðsstjóra er falið að kalla eftir tillögum frá íbúum sem hópurinn mun vinna úr.

Fundi slitið kl. 17.00

Var efnið á síðunni hjálplegt?