373. fundur

373. fundur Sveitarstjórnar Húnaþings vestra haldinn þriðjudaginn 24. október 2023 kl. 15:00 Ráðhúsi.

Fundarmenn

Þorleifur Karl Eggertsson oddviti, Magnús Magnússon varaoddviti, Sigríður Ólafsdóttir, Friðrik Már Sigurðsson, Magnús Vignir Eðvaldsson, Elín Lilja Gunnarsdóttir, Þorgrímur Guðni Björnsson.

Starfsmenn

Unnur Valborg Hilmarsdóttir og Elín Jóna Rósinberg.

Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
 
 
Oddviti setti fund.
1. Gjaldskrár 2024 - 2308025
GJALDSKRÁ FASTEIGNAGJALDA OG ÚTSVARS
Lögð fram eftirfarandi tillaga að gjaldskrá fasteignagjalda og útsvars árið 2024, ásamt reglum um afslátt að fasteignaskatti:
Útsvar 14,74 %
 
Fasteignaskattur A-gjald 0,475% af fm. húss og lóðar
Fasteignaskattur B-gjald 1,32% af fm. húss og lóðar
Fasteignaskattur C-gjald 1,32% af fm. húss og lóðar
Lóðarleiga, almennt gjald 10,5 kr. pr. m2
Lóðarleiga, ræktað land 1,46 kr. pr. m2
 
Holræsagjald 0,21% af fm. húss og lóðar
Vatnsskattur 0,27% af fm. húss og lóðar
Aukavatnsskattur 25,0 kr. m3
 
Hreinsun rotþróa:
0-2000 lítra 17.450 kr. pr. þró
2001-4000 lítra 21.500 kr. pr. þró
4001-6000 lítra 23.500 kr. pr. þró
6001 lítra og stærri 5.930 kr. pr. m3
 
 
Sorpgjald á íbúðarhúsnæði, regluleg sorphirða 100.000 kr.
 
Sorpeyðingargjald, sumarbústaðir og íbúðir í dreifbýli
þar sem ekki er hirt sorp 43.000 kr.
 
 
 
Lóðarleigu og fasteignaskatt skv. A-, B- og C- gjaldi skal innheimta frá fyrstu skráningu hjá Fasteignamati ríkisins, en holræsagjald, vatnsskatt og sorpgjöld skal innheimta frá þeim tíma að fasteign hefur verið skráð með byggingarstig 4.
 
Gjalddagar
Gjalddagi gjalda undir kr. 20.000 er 1. maí.
Gjalddagar gjalda sem eru á bilinu kr. 20.001-38.000 eru 1. apríl og 1. júlí.
 
Fasteignagjöld eigna sem eru hærri en kr. 38.000 hafa 8 gjalddaga, frá 1. febrúar 2024 til 1. september 2024.
 
 
Reglur um afslátt af fasteignaskatti árið 2024.
 
Reglur um afslátt af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega eru vegna íbúðarhúsnæðis þeirra til eigin nota og fyrir þá sem eiga lögheimili í Húnaþingi vestra. Afslátturinn er tekjutengdur og miðaður við árstekjur 2022 samkvæmt skattframtali 2023, þ.m.t. eigna- og fjármagnstekjur og tekur einungis til fasteignaskatts. Hámark afsláttar er kr. 82.000.
 
Tekjuviðmiðun:
Fyrir einstaklinga:
a) Með heildartekjur allt að kr. 4.539.000 fær 100% afslátt, þó að hámarki kr. 82.000.
b) Með tekjur umfram kr. 6.125.000 enginn afsláttur.
Fyrir hjón og samskattað sambýlisfólk:
a) Með heildartekjur allt að kr. 6.125.000 fær 100% afslátt, þó að hámarki kr. 82.000.
b) Með heildartekjur umfram kr. 8.100.000 enginn afsláttur.
 
Hlutfallslegur afsláttur er veittur samkvæmt framangreindu tekjubili.
 
Skilyrði fyrir niðurfellingu er að viðkomandi búi sjálfur í húsnæðinu og hafi ekki af því leigutekjur. Sé fasteign skráð með leyfi til heimagistingar fellur afsláttur af fasteignagjöldum með öllu niður árið 2024.
 
Í tilfelli hjóna eða sambýlisfólks, ræður aldur þess sem fyrr verður 67 ára án tillits til þess hvort þeirra er skráð fyrir eigninni.
 
Við andlát maka styrkir sveitarsjóður eftirlifandi um sömu upphæð og nemur álögðum fasteignaskatti ársins að fullu.
 
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
GJALDSKRÁR TIL EINNAR UMRÆÐU
Lögð fram tillaga að gjaldskrá félagsþjónustu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá Grunnskóla Húnaþings vestra, dreifnáms og fjarnámsstofu.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá Leikskólans Ásgarðs.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá Tónlistarskóla Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá bóka- og héraðsskjalasafns Húnaþings vestra og Félagsmiðstöðvarinnar Óríon.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá Slökkviliðs Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá geymslusvæða í Grænulaut.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá Félagsheimilisins á Hvammstanga.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá þjónustumiðstöðvar.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
GJALDSKRÁR TIL FYRRI UMRÆÐU
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hirðu, móttöku- og flokkunarstöð úrgangs í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá sorphirðu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hreinsun og losun rotþróa í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hvammstangahöfn, hafnarsjóð.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá Hitaveitu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá Vatnsveitu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá Brunavarna Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá gatnagerðargjalda.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
Lögð fram tillaga að gjaldskrá byggingarleyfis- og þjónustugjalda skipulags- og byggingarfulltrúa.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
 
 
2. Fjárhagsáætlun ársins 2024, ásamt 3ja ára áætlun fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki. - 2308025
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir að vísa framlagðri fjárhagsáætlun fyrir 2024 ásamt 3ja ára áætlun fyrir árin 2025 - 2027 fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki til síðari umræðu í sveitarstjórn þann 9. nóvember nk.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð upplesin og samþykkt.
 
Fundi slitið kl. 16:04.
 
 
 
 
Var efnið á síðunni hjálplegt?