363. fundur

363. fundur skipulags- og umhverfisráðs haldinn fimmtudaginn 7. desember 2023 kl. 15:00 Ráðhúsi.

Fundarmenn

Friðrik Már Sigurðsson, formaður
Fríða Marý Halldórsdóttir
Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir
Valdimar H. Gunnlaugsson

Starfsmenn

Bogi Magnusen Kristinsson, skipulags- og byggingafulltrúi
Elísa Ýr Sverrisdóttir

Fundargerð ritaði: Elísa Ýr Sverrisdóttir.

 

1.

Hvammstangakirkjugarður - 2311020

 

Umsókn sóknarnefndar Hvammstangasóknar um mögulega stækkun Hvammstangakirkjugarðs til norðurs. Á móti kæmi landspilda sem gert var ráð fyrir að færi undir stækkaðan kirkjugarð til vesturs samkvæmt gildandi deiliskipulagi, myndi áfram nýtast sem útivistarsvæði eins og verið hefur.

 

Í gildandi deiliskipulagi fyrir Kirkjuhvamm á Hvammstanga er gert ráð fyrir stækkun Kirkjuhvammskirkjugarðs til vesturs frá núverandi vesturlínu garðsins. Byggðasafn Skagfirðinga vann fornleifaskráningu í Kirkjuhvammi og voru skráðar alls 27 minjar.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umsókn um breytingar á Hvammstangakirkjugarði til norðurs með óverulegum breytingum á deiliskipulagi samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslögum nr. 123/2010. Grenndarkynna þarf breytinguna fyrir hagsmunaðaðilum sem eru rekstraraðilar tjaldsvæðis. Leita skal umsagnar Minjavarðar Norðurlands vestra vegna minja sem er innan þess svæðis sem snýr að fyrirhuguðum breytingum.

 

   

2.

Laugarbakki Höfði, afmörkun lands. - 2311007

 

Málið var á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 1. nóvember 2023. Leiðrétt skal í bókun fundargerðar á staðfangi Reykjahöfði á 24.2 ha landi úr Syðri-Reykja L144151. Rétt staðfang er Laugabakki-Höfði.

 

Fyrir liggur uppfærður uppdráttur af Laugabakka-Höfði, sem unnin er af Káraborg ehf. dags. 05.10.2023.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja afmörkun Laugabakka-Höfða og staðfang, sem er í samræmi við þinglýst gögn og undirrituð af eigendum Syðri-Reykja.

 

   

3.

Laugabakki-Reykjahöfði - 2309009

 

Umsókn um stofnun lóðar Reykjahöfði sem er 8.4 ha lands úr landi Laugabakki-Höfði samkvæmt uppdrætti unnin af Káraborg ehf. dagsettum þann 06.12.2023.

 

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðar og nýtt staðfang.

 

   

4.

Skrúðvangur, kynning á uppbyggingu. - 2312006

 

Lögð er fram til kynningar fyrirhuguð uppbygging á Skrúðvangi L144166.

 

Skipulags- og umhverfisráð tekur vel í þá fyrirhuguðu uppbyggingu sem er áætluð í og við Skrúðvang og er í samræmi við skipulagsáætlun fyrir svæðið. Tillaga að stækkun lóðar skarast við aðliggjandi lóð Reykjahöfða, sem hefur verið úthlutað til gróðrarstöðvar á byggðaráðsfundi 11. september 2023.

 

   

5.

Ás, afmörkun lóðar. - 2312009

 

Húnaþing vestra, sækir um að afmarka 900 m² lóð í Ási L144418 samkvæmt uppdrætti gerðum af Káraborg ehf. dagsettum þann 1. desember 2023.

 

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja afmörkun lóðar samkvæmt hnitsettu lóðarblaði.

 

   

6.

Hvammstangabraut 41, afmörkun lóðar. - 2312010

 

Húnaþing vestra, sækir um að afmarka 1.100 m² lóð á Hvammstangabraut 41 L144313 samkvæmt uppdrætti gerðum af Káraborg ehf. dagsettum þann 1. desember 2023.

 

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja afmörkun og leiðrétt stærð lóðar samkvæmt hnitsettu lóðarblaði.

 

   

7.

Hvammstangabraut 39, afmörkun lóðar. - 2312011

 

Húnaþing vestra, sækir um að afmarka 681 m² lóð á Hvammstangabraut 39 L144311 samkvæmt uppdrætti gerðum af Káraborg ehf. dagsettum þann 1. desember 2023.

 

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja afmörkun og leiðrétt stærð lóðar samkvæmt hnitsettu lóðarblaði.

 

   

8.

Staðarskáli, umsókn um byggingarheimild. - 2311058

 

Festi hf. sækir um byggingarheimild fyrir breytingu innandyra og á inngönguhurð á Staðarskála samkvæmt fyrirliggjandi uppdráttum gerðum af Stáss arkitektar.

 

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að heimila byggingarheimildina.

 

   

9.

Reykjarskóli, umsókn um stöðuleyfi. - 2311014

 

Ungmennafélag Íslands sækir um stöðuleyfi fyrir gám á Reykjatanga L191242.

 

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að heimila stöðuleyfið.

 

   

 

Fundargerð upplesin og samþykkt Fundi slitið kl. 17:00.

 

     
     
     
Var efnið á síðunni hjálplegt?