350. fundur

350. fundur skipulags- og umhverfisráðs haldinn fimmtudaginn 3. nóvember 2022 kl. 15:00 Ráðhúsi.

Fundarmenn

Friðrik Már Sigurðsson, formaður

Birkir Snær Gunnlaugsson, varaformaður

Óskar Már Jónsson

Sveinbjörg Rut Pétursdóttir

Guðjón Þórarinn Loftsson

Starfsmenn

Bogi Magnusen Kristinsson, skipulagsfulltrúi

Elísa Ýr Sverrisdóttir, starfsmaður

Fundargerð ritaði: Elísa Ýr Sverrisdóttir.

1. Kjörseyri, stofnun vegsvæðis - 2210014.

Vegagerðin óskar eftir því að stofnað verður vegsvæði úr landi Kjörseyrar 1 lnr. 142200, samkvæmt uppdrætti gerðum af Mannvit dags. 12. mars 2022. Stofnað vegsvæði fær heitið Kjörseyri 1 vegsvæði. 

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðar undir vegsvæði sem fær heitið Kjörseyri 1 vegsvæði.

   

2. Valdarás, umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir hitaveitu - 2211003.

Húnaþing vestra sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu
hitaveitu í Fitjárdal samkvæmt uppdráttum gerðum af Káraborg ehf dagsettum þann 19.10.2022.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja framkvæmdarleyfi fyrir lagningu hitaveitu í Fitjárdal.

   

3. Víðigerði, umsókn um byggingarleyfi - 2210023.

K.L.H ehf sækir um byggingarleyfi svo að hægt verði að breyta matshluta 060101 sem skráður er í dag geymsla í íbúðarhúsnæði.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir byggingaráformin og byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.

   

4. Syðri-Þverá, umsókn um rekstrarleyfi - 2210021.

Jóhannes Óskar Sigurbjörnsson, sækir um rekstrarleyfi á Syðri-Þverá lnr. 144566 fyrir gististað í flokki II-C minni gistiheimili.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitastjórn að samþykkja rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II-C á Syðri-Þverá.

Var efnið á síðunni hjálplegt?