43. fundur

43. fundur Veituráðs haldinn þriðjudaginn 19. september 2023 kl. 16:00 í fundarsal Ráðhússins.

Fundarmenn

Gunnar Þorgeirsson formaður, Ármann Pétursson aðalmaður og Gunnar Örn Jakobsson aðalmaður.

Starfsmenn

Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri og Þorbergur Guðmundsson leiðtogi veitna.

Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir.

Gunnar Þorgeirsson formaður setti fund.

Afgreiðslur:
1. Staða framkvæmda við vatnslögn að Laugarbakka.
Þorbergur Guðmundsson fór yfir stöðu framkvæmda við vatnslögn að Laugarbakka. Framkvæmdir ganga almennt vel.
2. Tengingar við nýja vatnslögn að Laugarbakka.
Borist hafa beiðnir frá landeigendum á lagnaleið vatnslagnar að Laugarbakka um tengingar inn á lögnina. Veituráð samþykkir tengingar lögbýla við vatnslögnina þar sem aðstæður leyfa. Tenging fari fram með þeim hætti að settir verði upp brunnar með flotlokum í eigu Vatnsveitu Húnaþings vestra sem starfsmenn veitnanna hafa óheft aðgengi að og annast viðhald á. Lagning lagna frá brunni heim að húsi verði á ábyrgð og kostnað landeiganda. Greidd verði heimæðargjöld í samræmi við gjaldskrá Vatnsveitu Húnaþings vestra.
3. Gjaldskrá vatnsveitu.
Sveitarstjóri fór yfir samanburð gjaldskráa nokkurra vatnsveitna. Ljóst er að notkunargjald stórnotenda Vatnsveitu Húnaþings vestra er umtalsvert lægra en þekkist víða annarsstaðar. Veituráð beinir því til sveitarstjórnar að rúmmetragjald til stórnotenda verði hækkað umfram verðlagshækkanir í gjaldskrá ársins 2024. Jafnframt beinir veituráð því til sveitarstjórnar að undirbúin verði gjalddtaka fyrir notkun vatns til allra annarra nota en heimilisnota í samræmi við 7. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004.
4. Framkvæmdir við hitaveitu.
Þorbergur Guðmundsson fór yfir þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar voru í sumar. Til stóð að endurnýja lagnir við Höfðabraut. Engin tilboð bárust í verkið. Reynt verður að ráðast í verkið á næsta ári. Efni hefur þegar verið keypt.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17:43.

Var efnið á síðunni hjálplegt?