5. Fundur

5. Fundur Öldungaráðs haldinn miðvikudaginn 6. apríl 2022 kl. 14:00 Ráðhús.

Fundarmenn

Guðmundur Haukur Sigurðsson formaður, Jóna Halldóra Tryggvadóttir varaformaður, Sigrún Ólafsdóttir aðalmaður, Sesselja Kristín Eggertsdóttir, aðalmaður, Gyða Sigríður Tryggvadóttir, aðalmaður, Eggert Karlsson, aðalmaður og Ólafur B. Óskarsson, aðalmaður.

Starfsmenn

Jenný Þórkatla Magnúsdóttir, sviðsstjóri.

Henrike Wappler, yfirfélagsráðgjafi.

Fundargerð ritaði: Jenný Þórkatla Magnúsdóttir.

Dagskrá:
1. Kynning á þeim málefnum sem Landsamband eldri borgara leggur áherslu á í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.
2. Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir kynnir vinnu við menntastefnu Húnaþings vestra.
3. Bifreið dagþjónustunnar.
4. Fasteignaskattur 67 ára og eldri.
5. Setbekkir fyrir göngufólk.

Afgreiðslur:

1. Formaður fór yfir áhersluatriði frá Landsambandi eldri borgara í aðdraganda sveitastjórnarkosninga í maí 2022. Formanni falið að koma þessum áherslum áleiðis til framboða í Húnaþingi vestra.

2. Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir verkefnastýra sem stýrir vinnu við gerð menntastefnu Húnaþings vestra fór yfir þá vinnu sem hefur verið unnin og næstu skref. Ráðið tók þátt í hugmyndavinnu og lagði til nokkrar samstarfshugmyndir eldri borgara og skólanna. Öldungaráð þakkar Guðrúnu Ósk fyrir kynninguna og lýsir yfir ánægju með vinnuna.

3. Ráðið telur að bíllinn sem er í notkun í dagþjónustunni í dag gegni ekki sínu hlutverki m.a. vanti fjórhjóladrif og eins ætti bíllinn að vera með hjólastólalyftu. Ráðið leggur áherslu á að þetta verði komið í lag síðasta lagi í haust.

4. Ráðið hafði óskað eftir upplýsingum um fjölda þeirra eldriborgara sem greiða fasteignaskatt og einnig fjölda þeirra sem fá afslátt af fasteignaskatti. Alls eiga 114 einstaklingar, 67 ára og eldri, fasteignir í sveitarfélaginu. Af þessum 114 einstaklingum fá 28 einstaklingar afslátt af fasteignaskattinum. Ráðið leggur til að tekjuviðmið hækki í takt við hækkun fasteignamats og telur að þess hafi ekki verið gætt við síðustu hækkun.

5. Ráðið ítrekar bókun sem var gerð þann 2. júní 2020. „Fjölga þyrfti bekkjum í sveitarfélaginu til að létta undir og hvetja til göngu borgara, eins og t.d. við Brekkugötu og á gönguleið uppí Hvamm. Einnig þarf að bæta við bekkjum á Laugarbakka og skoða hvernig þessu er háttað á Borðeyri. Ráðið hvetur sveitarstjórn til að ganga í málið.“
Einnig vill ráðið hvetja til að gönguleiðir innanbæjar og „Merkurhringurinn“ verði ruddar betur þegar snjór er.

Formaður þakkar ráðinu og starfsmönnum fyrir samstarfið á kjörtímabilinu.

Fleira ekki tekið fyrir.
Fundargerð upplesin og fundi slitið kl. 15.46

Var efnið á síðunni hjálplegt?