185. fundur

185. fundur landbúnaðarráðs Húnaþings vestra haldinn fimmtudaginn 12. ágúst 2021 kl. 13:00 í gegn um fjarfundabúnað.

Fundarmenn

Ingimar Sigurðsson, formaður, Halldór Pálsson, aðalmaður, Sigtryggur Sigurvaldason, aðalmaður, Guðrún Eik Skúladóttir, aðalmaður og Ebba Gunnarsdóttir, aðalmaður.

 

Starfsmenn

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri

 

Fundargerð ritaði: Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir.

Dagskrá:

  1. Fyrirkomulag gæsaveiða 2021.
  2. Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2021.

 

 

 

Afgreiðslur:

 

  1. Fyrirkomulag gæsaveiða 2021. Samþykkt að hafa fyrirkomulag gæsaveiða óbreytt frá fyrra ári. Gæsaveiðar 2021 verða með eftirfarandi hætti.

Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til gæsaveiða í eignarlöndum sveitarfélagins. Í boði er að kaupa leyfi á þremur svæðum;

  • Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði austan Víðidalsár ásamt jörðinni Öxnatungu.
  • Víðidalstunguheiði vestan Víðidalsár ásamt jörðunum Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og Króki.
  • Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru.

Hvert veiðileyfi gildir þann dag sem tilgreindur er á viðkomandi leyfi og er útgefið innan þess gæsaveiðitíma sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2021. Leyfið veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma.

Leyfin verða til sölu hjá Ferðaþjónustunni Dæli. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000 á dag.

Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði er takmarkaður við 4 byssur á hverju svæði á dag og tekið skal fram að leyfishafar hafi einir heimild til veiða á umræddum svæðum. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

Með vísan til 7. gr. Fjallskilasamþykktar Húnaþings vestra er óheimilt að nýta hunda og flygildi (dróna) til veiða fyrr en fyrstu göngum á viðkomandi afrétti er lokið.

Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Veiðileyfið veitir því ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði.

Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.

Kort af veiðisvæðunum eru aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hunathing.is.

 

  2. Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2021. Samþykkt að hafa fyrirkomulag rjúpnaveiða óbreytt frá fyrra ári og verður með eftirfarandi hætti haustið 2021.

Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða í eignarlöndum sveitarfélagins. Í boði verða tvenns konar leyfi sem gefin verða út á jafnmörg svæði, en þau eru;

  • Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði ásamt jörðunum Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og eignarhlut Húnaþings vestra í Öxnártungu (svæði 1).
  • Eignarhaldshlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru (svæði 2).

Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á veiðitíma rjúpu sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2021 og veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.

Veiðileyfin verða til sölu hjá Ferðaþjónustunni Dæli. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.500 á dag.

Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði 1 er takmarkaður við 4 byssur á dag, en 5 byssur á svæði 2. Leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynnar veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Veiðileyfið veitir því ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði.

Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er ákveðið og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.

Kort af veiðisvæðunum eru aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hunathing.is.

 

 

 

Fundargerð upplesin, fundi slitið kl. 13:32

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?