179. fundur

179. fundur landbúnaðarráðs Húnaþings vestra haldinn miðvikudaginn 14. október 2020 kl. 13:00 Ráðhúsi.

Fundarmenn

Ingimar Sigurðsson, formaður, Halldór Pálsson, aðalmaður,  Sigtryggur Sigurvaldason, aðalmaður,  Gunnar Þórarinsson, varamaður.  Ebba Gunnarsdóttir boðaði forföll og ekki náðist í varamann.

Starfsmenn

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri

Fundargerð ritaði: Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir

Dagskrá:

1. Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2020
2. Uppgjör vegna refa- og minkaveiða
3. Vetrarveiði á ref
4. Viðbragsáætlun vegna smölunar á afréttum og heimalöndum
5. Önnur mál

Afgreiðslur.

1. Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2020. Rætt var um fyrirkomulag á rjúpnaveiði í haust. Ákveðið var að fyrirkomulagið yrði óbreytt frá síðasta ári.
Fyrirkomulag rjúpnaveiða í eignarlöndum Húnaþings vestra verður með eftirfarandi hætti haustið 2020:
1. Veiðimönnum með gilt veiðikort útgefið af Veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða í eignarlöndum sveitarfélagsins. Um verður að ræða tvennskonar leyfi sem gefin verða út á jafnmörg svæði. Kort af svæðunum má sjá á heimasíðu Húnaþings vestra www.hunathing.is
Svæðin eru: 1. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði ásamt jörðunum Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og eignarhlut Húnaþings vestra í Öxnártungu.
2. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru.
2. Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á veiðitíma rjúpu sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2020 og veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.
3. Veiðileyfin verða til sölu hjá Ferðaþjónustunni Dæli. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000 á dag.
4. Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði 1 er takmarkaður við 4 byssur á dag en 5 byssur á svæði 2 og tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.
5. Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Þannig veitir veiðileyfið ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði.
Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að takmörkuðum gæðum eins og rjúpnaveiði.
2. Uppgjör vegna refa- og minkaveiða.
Lagðar fram upplýsingar um refa- og minkaveiði frá 1. september 2019 til 31. ágúst 2020. Kostnaður Húnaþings vestra vegna refa- og minkaveiði á þessu tímabili er alls kr. 7.386.159.- Unnin grenidýr eru 85, yrðlingar 183, hlaupadýr 63 og minkar 89. Mikilvægt er að tryggja fjárveitingu til áframhaldandi veiða til að halda stofninum í skefjum.
3. Vetrarveiði á ref. Landbúnaðarráð óskar eftir að fá kr. 1.000.000 í fjárveitingu á árinu 2021 til vetrarveiði á ref. Sveitarstjóra falið að auglýsa eftir aðilum til vetrarveiði á ref með umsóknarfresti til 2. nóvember nk. með fyrirvara að fjármagn fáist.
4. Viðbragsáætlun vegna smölunar á afréttum og heimalöndum. Lögð var fram til kynningar „Viðbragðsáætlun vegna smölunar á afréttum og heimalöndum vegna slæmrar veðurspár og veðurútlits“ sem unnin var af almannavarnanefnd Húnaþings árið 2013. Landbúnaðarráð felur fjallskiladeildum að vinna viðbragðsáætlanir fyrir hvert gangnasvæði á grunni þessarar áætlunar.


Fundargerð upplesin, fundi slitið kl. 14:20

Var efnið á síðunni hjálplegt?