245. Fundur

245. Fundur fræðsluráðs haldinn fimmtudaginn 18. apríl 2024 kl. 15:00 Ráðhúsi.

Fundarmenn

Elín Lilja Gunnarsdóttir, formaður,
Halldór Sigfússon, aðalmaður,
Guðmundur Ísfeld, aðalmaður,
Eygló Hrund Guðmundsdóttir, aðalmaður,
Ingi Hjörtur Bjarnason, varamaður.

Starfsmenn

Sigurður Þór Ágústsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs. 

Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson

Kristinn Arnar Benjamínsson og Guðný Kristín Guðnadóttur mættu til fundar kl. 15:05

1. 

Leiðbeinandi verklag vegna undirmönnunar í leikskólanum Ásgarði - 2403044

 

Skólastjóri leikskóla fór yfir drög að verklagi vegna undirmönnunar. Fræðsluráð felur skólastjóra að senda drögin til foreldrafélagsins til athugasemda og gera breytingar í samræmi við umræður á fundinum.

 

   

2. 

Eftirlitsskýrsla Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra vegna leikskóla 12. mars 2024 - 2403063

 

Lögð fram eftirlitsskýrsla til kynningar. Skólastjóri leikskóla fór yfir skýrsluna og viðbrögð við henni.

 

   

Eydís Bára Jóhannsdóttir, Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir, Elsche Oda Apel og Eydís Ósk Indriðadóttir mættu til fundar kl. 15:33

3. 

Hljóðvist í skólum - 2403047

 

Skólastjórnendur leik- og grunnskóla ræddu hljóðvist í skólum sveitarfélagsins. Þeir eru meðvitaðir um mikilvægi hljóðvistar og staðan í skólum er almennt góð en á nokkrum svæðum þarf að huga betur að hljóðvist. Fræðsluráð hvetur stjórnendur til að fylgjast áfram með hljóðvist í skólum sveitarfélagsins.

Kristinn Arnar og Guðný Kristín véku af fundi kl. 15:44

 

   

4. 

Eineltisáætlun Grunnskóla Húnaþings vestra - 2404076

 

Aðstoðarskólastjóri fór yfir nýja eineltisáætlun skólans. Fræðsluráð lýsir yfir ánægju með áætlunina.

 

   

5. 

Eftirlitsskýrsla Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra vegna grunnskóla 31. janúar 2024 - 2402034

 

Samkvæmt skólastjórnendum gengur vel að fylgja eftir atriðum í eftirlitsskýrslu þó ekki sé öllu lokið.

Halldór Sigfússon, Guðrún Ósk, Eydís Bára, Elsche Oda og Eydís Ósk véku af fundi kl. 16:12

 

   

6. 

Umsókn í Lýðheilsusjóð 2024 - 2403038

 

Lagt fram svarbréf Lýðheilsusjóðs um styrk til sumarstarfs ungmenna í Húnaþingi vestra.

 

   

7. 

Fundargerðir farsældarteymis - 2310067

 

Lagðar fram til kynningar.

 

   

8. 

Skóladagatal leikskóla 2024-2025 - 2402057

 

Fræðsluráð samþykkir skóladagatal leikskólans með fyrirvara um endanlega dagsetningu útskriftar elstu barna.

 

   

9. 

Skóladagatal grunnskóla og tónlistarskóla 2024-2025 - 2402050

 

Lagðar fram tillögur skólastjórnenda um skerðingar á þjónustu frístundar skólaárið 2024-2025. Bréfinu vísað til frekari umræðu byggðarráðs.

 

   

 

Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17:23.

Var efnið á síðunni hjálplegt?