Afgreiðslur:
- Rekstrarstjóri Unnsteinn Andrésson mætir til fundar við byggðarráð. Farið yfir helstu verkefni eins og hitaveitu í Víðidal/Miðfirði, ljósleiðara utan hitaveitu, gólfið í íþróttamiðstöðinni, endurnýjun heimtauga á Hvammstanga, vatnsveita Reykjaskóla, viðhald á Gilsbakka 8, varaafl í dæluhúsi á Laugarbakka, viðbygging íþróttamiðstöðvar og fl.
- 1901026 Lögð fram til kynningar fundargerð 40. fundar stjórnar SSNV frá 8. janúar sl.
- Lóðarumsóknir lagðar fram:
a. 1901011 Umsókn frá Hoffell ehf. um byggingarlóð undir raðhús að Lindarvegi 5 á Hvammstanga. Byggðarráð samþykkir ofangreinda umsókn að Lindarvegi 5 á Hvammstanga.
b. 1901012 Umsókn frá Hoffell ehf. um byggingarlóð undir raðhús að Lindarvegi 1 á Hvammstanga. Byggðarráð samþykkir ofangreinda umsókn að Lindarvegi 1 á Hvammstanga.
4. 1812026 Lagt fram bréf frá Umhverfisstofnun þar sem óskað er eftir að Húnaþing vestra tilnefni fulltrúa sveitarfélagsins í vatnasvæðanefnd með tilvísan í 6. gr. reglugerðar um stjórn vatnamála.Málið var áður á dagskrá á 988. fundi byggðarráðs. Byggðarráð tilnefnir Guðnýju Hrund Karlsdóttur og Ólaf Benediktsson sem fulltrúa fyrir Húnaþing vestra.
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl: 14:25