953. fundur

953. fundur byggðarráðs Húnaþings vestra haldinn mánudaginn 13. nóvember 2017 kl. 14:00 Í fundarsal Ráðhúss.

Fundarmenn

Fundinn sátu:      
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, aðalmaður, Elín R. Líndal, aðalmaður og Elín Jóna Rósinberg aðalmaður.

Starfsmenn

Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri.
Guðrún Ragnarsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Fundargerð ritaði: Guðrún Ragnarsdóttir.

Afgreiðslur:

  1. Fundargerðir lagðar fram til kynningar
    a)  1711006 Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélagafrá 27. október sl.
    b)  1711022  Fundargerð stjórnar SSNV frá 7. nóvember sl.
    c)  1711023  Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands frá 25. október sl.
  2. 1711017  Lagt fram bréf Landgræðslu ríkisins  dags. 7. nóvember sl.  Beiðni um styrk að upphæð kr. 114.000 til samstarfsverkefnisins „Bændur græða landið“ vegna ársins 2017.  Byggðarráð sér sér ekki fært að styrkja verkefnið að þessu sinni.
  3. 1711019  Lagt fram erindi Sólrúnar G. Rafnsdóttur dags. 1. nóvember sl. þar sem hún óskar eftir framlengingu á árskorti sínu í íþróttamiðstöðina vegna lokunar íþróttasals í sumar þegar verið var að endurnýja gólfefni í íþróttasal.  

    Byggðarráð hafnar erindinu á þeim forsendum að þeir sem kaupa árskort í íþróttamiðstöðina þurfa að gera ráð fyrir að loka þurfi eða takmarka notkun tímabundið á hverju ári vegna viðhalds og endurnýjunar mannvirkisins.

  4. 1711020  Lögð fram styrkumsókn frá Blakdeild Kormáks dags. 17. október sl.   Erindinu frestað til næsta fundar.
  5. 1711016  Lögð fram styrkumsókn frá mótsnefnd „Ísmótsins Svínavatn 2018“  Byggðarráð hafnar erindinu.   
  6. 1711010  Lagt fram erindi Þorbjargar Ingu Ásbjarnardóttur og Jóhannesar Óskars Sigurbjörnssonar dags. 1. nóvember sl. þar sem þau óska eftir að Húnaþing vestra greiði sinn hlut í endurnýjun girðinga á milli Þorgrímsstaða og Engjabrekku á árinu 2018.  Um er að ræða 1200 metra langa girðingu.  Byggðarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar.     
  7. 1711024  Lagt fram til kynningar erindi SSNV, dags. 1. nóvember sl. og afrit af bréfi Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, þar sem sveitarstjórnum á Norðurlandi vestra er gefinn kostur á að senda inn athugasemdir við tillögu vinnuhóps ráðuneytisins um rekstur flugsamgöngukerfis innanlands.   
  8. 1711021  Árshlutauppgjör janúar-september 2017.  Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit sveitarsjóðs og undirfyrirtækja fyrstu 9 mánuði ársins og samanburður við fjárhagsáætlun sama tímabils.  Rekstur almennt í samræmi við áætlun, en þó fara málefni fatlaðra og hreinlætismál framúr upphaflegri áætlun, og hefur verið brugðist við því með gerð viðaukavið áætlunina.

 

 

Samþykkt að taka á dagskrá

9. Leiðrétt lögheimili Reykjaeigna ehf.

Byggðarráð samþykkir  að flytja lögheimili Reykjaeigna ehf. að Hvammstangabraut 5 á Hvammstanga.

Fundargerð upplesin og samþykkt.

Fundi slitið 14:57

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?