1211. fundur

1211. fundur byggðarráðs Húnaþings vestra haldinn mánudaginn 22. apríl 2024 kl. 14:00 .

Fundarmenn

Magnús Magnússon, formaður,
Elín Lilja Gunnarsdóttir, varaformaður,
Magnús Vignir Eðvaldsson, aðalmaður. 

Starfsmenn

Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri.

 

Formaður setti fund,

Björn Bjarnason og Ásmundur Ingvarsson (í fjarfundi) komu til fundar kl. 14:03.

1.

Rekstrarstjóri kemur til fundar - 2403051

 

Björn Bjarnason, rekstrarstjóri og Ásmundur Ingvarsson frá Ferli verkfræðistofu, fóru yfir valkosti við fyrirhugaðar framkvæmdir við þak Félagsheimilisins Hvammstanga. Byggðarráð samþykkir tillögu Ferlis um að notaðar verði uppstólaðar yleiningar. Rekstrarstjóra er falið að hafa samráð við byggingafulltrúa varðandi framkvæmdina, sækja um framkvæmdaleyfi og gera verðfyrirspurn í efni og vinnu í samræmi við innkaupareglur sveitarfélagsins.
Sveitarstjóra er falið að undirbúa gerð viðauka við fjárhagsáætlun vegna framkvæmdarinnar.

Ásmundur vék af fundi kl. 14.27. Björn vék af fundi kl. 14:40.

 

   

2.

Trúnaðarmál - 2404092

 

Starfsmannamál - fært í trúnaðarbók.

 

   

3.

Tilkynning frá Óbyggðanefnd um málsmeðferð vegna eyja og skerja - 2404102

 

Lögð fram tilkynning frá Óbyggðanefnd vegna krafna í eyjar og sker. Kröfulýsingarfrestur er framlengdur til 2. september 2024 til að gefa fjármála- og efnahagsráðherra færi á að ljúka endurskoðun sem ráðherra hefur boðað á kröfugerð ríkisins, sem og kortagerð vegna hennar, og tryggja að landeigendur hafi nægan tíma að því loknu til að bregðast við endurskoðuðum kröfum ríkisins og eftir atvikum lýsa gagnkröfum. Lagt fram til kynningar.

 

   

4.

Samningur um gagnkvæma aðstoð milli Brunavarna Húnaþings vestra og Brunavarna A-Hún - 2404094

 

Lagður fram samningur milli Brunavarna Húnaþings vestra og Brunavarna A-Hún um gagnkvæma aðstoð við slökkvi- og björgunarstörf ásamt viðbragði við mengunaróhöppum í samræmi við 3. mgr. 20. gr. laga nr. 75/2000. Samningsaðilar eru sammála um að gagnkvæm aðstoð á milli aðila sé veitt án endurgjalds sem endurskoðað skal innan fimm ára með tilliti til umfangs og kostnaðar. Byggðarráð samþykkir samninginn og felur sveitarstjóra undirritun hans.

 

   

5.

Aðalfundur Veiðifélags Víðidalsár þann 25. apríl 2024 - 2404107

 

Lagt fram boð á aðalfund Veiðifélags Víðidalsár þann 25. apríl 2024 kl. 20. Sigríður Ólafsdóttir verður fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum og fer með atkvæðisrétt.

 

   

6.

Niðurstöður könnunar á starfsemi slökkviliða - 2404105

 

Lagt fram til kynningar.

 

   

7.

Aðalfundur Landskerfis bókasafna 7. maí 2024 - 2404112

 

Lagt fram til kynningar boð á aðalfund Landskerfis bókasafna sem fram fer þann 7. maí 2024.

 

   

8.

Fundargerð 105. fundar stjórnar SSNV sem fram fór þann 2. apríl 2024 - 2404095

 

Lögð fram til kynningar.

 

   

9.

Ársreikningur Hafnasambandsins fyrir árið 2023 - 2404113

 

Lagður fram til kynningar.

 

   

Starri Heiðmarsson og Ragna Guðrún Snorradóttir komu til fundar kl. 15.08.

10.

Fulltrúar Náttúrustofu Norðurlands vestra koma til fundar - 2403059

 

Starri Heiðmarsson framkvæmdastjóri Náttúrustofu Norðurlands vestra og Ragna Guðrún Snorradóttir líffræðingur á stofunni komu til fundar við byggðarráð og fóru yfir starfsemi stofunnar. Byggðarráð þakkar Starra og Rögnu Guðrúnu greinargóða kynningu.

Starri og Ragna Guðrún véku af fundi kl. 15:39.

     

Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 15:50.

Var efnið á síðunni hjálplegt?