1167. fundur

1167. fundur byggðarráðs Húnaþings vestra haldinn mánudaginn 20. febrúar 2023 kl. 14:00 í fundarsal Ráðhússins.

Fundarmenn

Magnús Magnússon formaður, Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður og Elín Lilja Gunnarsdóttir varamaður

Starfsmenn

Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir.

Afgreiðslur:

  1. 2302020 Ársreikningur Hafnasambandsins 2022 drög. Lagður fram til kynningar og athugasemda. Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við reikninginn.
  2. 2302002 Umsókn um lóðina Höfðabraut 37. Gunnlaugur Agnar Sigurðsson, kt. 261174-3839, sækir um lóðina Höfðabraut 37 undir færanlega steypustöð. Byggðarráð samþykkir að úthluta Gunnlaugi Agnari Sigurðssyni lóðina Höfðabraut 37 til 7 ára. Í lóðaleigusamningnum skulu vera ákvæði um snyrtilega umgengni um lóð.
  3. 2302012 Erindi frá Meistaraflokksráði Kormáks/Hvatar. Áður á dagskrá 1166. fundar. Byggðarráð samþykkir að veita meistaraflokki Kormáks/Hvatar aðgang að líkamsræktaraðstöðu í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga fyrir allt að 5 leikmenn meistaraflokks til 15. september 2023.
  4. 2302024 Afskriftarbeiðni. Lögð fram til kynningar afskriftarbeiðni þing- og sveitarsjóðsgjalda frá Sýslumanni Norðurlands vestra.
  5. 2302025 Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi. Lögð fram til kynningar Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi. Áætlunin er til umsagnar með umsagnarfresti til 31. mars 2023. Sveitarstjóra er falið að vinna drög að umsögn og leggja fyrir byggðarráð.
  6. 2302027 Minnisblað um störf á fjölskyldusviði. Lagt fram minnisblað frá sviðsstjóra fjölskyldusviðs með tillögu að breytingum á störfum á sviðinu sem miða að bættri þjónustu við nemendur grunn- og leikskóla frá og með næsta skólaári, meðal annars með ráðningu þroskaþjálfa í fullt starf. Tillagan er unnin í samráði við farsældarteymi í hverju skólastjórnendur eiga sæti. Breytingin leiðir ekki til kostnaðarauka en gera þarf viðauka við fjárhagsáætlun vegna flutnings kostnaðar á milli deilda. Byggðarráð samþykkir tillöguna samhljóða og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna viðauka við fjárhagsáætlun í samræmi við fyrirhugaðar breytingar.

Magnús Magnússon vék af fundi kl. 14:41, Magnús Vignir Eðvaldsson tók við fundarstjórn.

   7. 2302030 Erindi frá Guðrúnu Helgu Magnúsdóttur þar sem hún fellur frá byggingaráformum og skilar lóðinni að Lindarvegi 12 á Hvammstanga. Lóðin er því laus til úthlutunar að nýju.

Magnús Magnússon kom aftur til fundar við byggðarráð kl. 14:43 og tók að nýju við stjórnun fundarins.

   8. 2302026 Fundargerð 90. fundar stjórnar SSNV frá 7. febrúar 2023 lögð fram til kynningar.

Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 15:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?