Afgreiðslur:
1. Leigusamningur vegna tjaldsvæðisins í Kirkjuhvammi. Lögð voru fram drög að endurnýjun samnings við Erlu B. Kristinsdóttur og Svein I. Bragason um rekstur tjaldsvæðisins í Kirkjuhvammi til næstu 5 ára. Byggðarráð samþykkir samninginn og felur sveitarstjóra undirritun hans.
2. Ársreikningur Húnaþings vestra fyrir árið 2020. Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, mætti til fundar og fór yfir drög að ársreikningi sveitarfélagsins fyrir árið 2020. Byggðarráð þakkar Elínu Jónu greinargóða yfirferð og vísar ársreikningi sveitarfélagsins til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 8:59