Lof mér að falla

Fimmtudaginn 22. nóvember klukkan 18:30 verður myndin Lof mér að falla

sýnd í Félagsheimilinu á Hvammstanga.

Myndin er bönnuð innan 14 ára og viljum við benda á að börn í 9. og 10. bekk komi með foreldri eða forráðamanni á sýninguna.

Ef fullorðinn aðili kemst ekki vinsamlegast hafið samband við Jennýju , sviðstjóra fjölskyldusviðs í síma 771-4966 eða sendið tölvupóst á netfangið jenny@hunathing.is

Æskilegt er að foreldri eða forráðamaður ungmenna á aldrinum 16-18 ára komi einnig á sýninguna með þeim.

Frítt er inn fyrir 18 ára og yngri í boði ungmennaráðs en þeir sem eru eldri en 18 ára greiða 1.500 kr.

Miðapantanir hjá Ólafi Má í síma : 895-4749.

Ungmennaráð Húnaþings vestra.

Var efnið á síðunni hjálplegt?