1. nóvember kl. 20:00-22:00
Viðburðir
Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna
Kvöldkaffi og sýningaropnun á byggðasafni
Miðvikudaginn 1. nóvember næstkomandi kl. 20:00 til 22:00 ætlum við á byggðasafninu að bjóða upp á kvöldkaffi og opna sýninguna „Sakamál í Húnaþingi.“ Tekin verða fyrir þrjú fræg sakamál frá 19. öld og sýndir verða gripir sem tengjast viðkomandi fólki eða viðfangsefni. Lykilgripir sýningarinnar eru millur Agnesar, en þær eru sagðar hafa fundist með beinum hennar þegar þau voru færð í vígða mold.
Sýningin er styrkt af Ferðamálafélagi Húnaþings vestra.
Við vonumst til að sjá ykkur sem flest.