Happy Halloween

Hrekkjavakan verður haldin eins og síðustu ár og hrekkjavökupartýið verður á sínum stað.

Það verður haldið laugardaginn 20. október 2018.

Partýið er frá klukkan 16:00- 18:00 í félagsmiðstöðinni Órion og þar verður matur á borðum, búningakeppni og fleira.

Eftir það verður verður svo gengið í hús og viljum við benda á eftirfarandi:

 Þeir sem vilja taka á móti börnunum eru vinsamlegast beðnir um að hafa ljós, lukt eða skreyta húsin sín til að sýna börnunum að þau séu velkomin.

Foreldrar barna sem koma í hrekkjavökupartýið mega endilega koma með veitingar á hlaðborðið helst skreyttar svolítið hrekkjavökulega.

P.s. Muna eftir endurskinsmerkjum og/eða láta börnin hafa vasaljós þar sem farið er að dimma verulega á þessum árstíma.

 

Styrktaraðilar Hrekkjavökunnar eru : Húnaþing vestra, KVH og Söluskálinn á Hvammstanga.

Var efnið á síðunni hjálplegt?