Nýr einstaklingsbúningsklefi í íþróttamiðstöð

Nýr einstaklingsbúningsklefi í íþróttamiðstöð

Tekinn hefur verið í notkun einstaklingsbúningsklefi í íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga. Er klefinn staðsettur við hlið gufuklefans. Aðstaðan hentar þeim fjölbreytta hópi sem vill og þarf að hafa fataskipti í einrúmi.

Uppsetning búningsaðstöðunnar er í samræmi við jafnréttisáætlun Húnaþings vestra þar sem kemur fram að aðstaða í skólum og íþróttamiðstöð skuli henta þörfum ólíkra hópa. Þar kemur meðal annars fram að aðstaða fyrir kynsegin nemendur grunnskóla skuli vera fyrir hendi en einnig að hugað sé að hinsegin iðkendum í íþrótta- og tómstundastarfi.  Einnig getur búningsaðstaðan hentað fyrir fatlaða einstaklinga sem þurfa að hafa með sér fylgdarmann. 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?